oft býr rauð sál undir brúnu hári…
Það er rosalega margt sem ég nenni ekki að gera í dag. Meðal þess er að baka súkkulaðikökuna sem ég lofaði að mæta með í matarboð í kvöld, fara í barnaafmælið sem mér er boðið í og sitthvað fleira. Allt þetta bliknar þó í samanburði við útför séra Sigurbjörns Einarssonar. Ég meina kommon, hver nennir að horfa á næstum því hundrað ára gamlan kall jarðsunginn í beinni?
Og já, mér er skítsama þó við séum að tala um séra Jón.
Þórhildur tófan 8september2008
Ekki gott þynnkugláp?
Þynnkan kom samt, sem betur fer, ekki í veg fyrir að kakan yrði algjört lostæti