oft býr rauð sál undir brúnu hári…
Það merkilegasta við Söruh Palin, sem John McCain útnefndi á dögunum sem varaforsetaefni sitt, virðist vera sú staðreynd að 17 ára gömul dóttir hennar eigi von á barni. Heimurinn stendur á öndinni yfir þessum fréttum og keppast fjölmiðlar um að birta fréttir af “ástandinu”. Hvenær hætti það að vera gangur lífsins að næstum 18 ára gamlar stúlkur yrðu mæður?
Ég held þó að þessar fréttir af dóttur Palin eigi, því miður, eftir að verða tvíeykinu til framdráttar. Bæði vegna þess að vestræn samfélög þrífast á fréttum sem þessum, Paris Hiltonisminn er kominn til að vera. Ég er handviss um að fleiri bandaríkjamenn viti nú hver frambjóðandinn sem á óléttu dótturina er, heldur en Joe Biden. Já, eða jafnvel sjálfur McCain. Önnur ástæðan er sú, að pólitík Söruh Palin virðist falla í skuggann af óléttu dóttur hennar þessa dagana. Það getur ekki verið nema gott, fyrir hana.
Sarah Palin er nefnilega kona sem:
1. Er andvíg fóstureyðingum. Hún er meðlimur í samtökum sem berst gegn fóstureyðingum og kalla sig “Feminists for life”.
2. Virðist hafa áhyggjur af áhrifum umhverfisverndar á olíuiðnaðinn. Palin lýsti því yfir að Alaskaríki myndi hefja lögsókn vegna ákvörðunar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings um að setja ísbirni á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Palin hefur áhyggjur af því að ákvörðunin muni hafa áhrif á þróun olíu- og gasiðnaðar í norðurhluta Alaska og segir að ekki liggi nægilegar sannanir fyrir því að stofninn sé raunverulega í hættu.
3. Telur að það besta fyrir heilbrigðiskerfið sé aukin samkeppni. Aðeins hún komi til með að viðhalda gæðum kerfisins og draga úr kostnaði fyrir “neytendur”.
4. Segir gróðurhúsaáhrifin ekki tilkomin af mannavöldum.
5. Styður frjálsa byssueign Bandaríkjamanna.
6. Sagðist aðspurð leggja mesta áherslu á öflugan hernað og skýra stefnu í orkumálum, færi hún í forsetaframboð.
7. Viðurkennir ekki rétt samkynhneigðra til að ganga í hjónaband.
8. Lét hafa þetta eftir sér:
“I’ve been so focused on state government, I haven’t really focused much on the war in Iraq. I heard on the news about the new deployments, and while I support our president, Condoleezza Rice and the administration, I want to know that we have an exit plan in place; I want assurances that we are doing all we can to keep our troops safe. Every life lost is such a tragedy. I am very, very proud of the troops we have in Alaska, those fighting overseas for our freedoms, and the families here who are making so many sacrifices.”
-Q&A with Alaska Business Monthly Mar 1, 2007
Er Sarah Palin einmitt konan sem heimurinn þarf á að halda?
Steinunn 4september2008
Glæsilegt blogg, en af nógu er að taka. Hún er t.d. ekki bara andvíg fóstureyðingum punktur, heldur öllum fóstureyðingum! Líka þegar að konunni hefur verið nauðgað eða lífi hennar er stefnt í hættu. Það er feminismi sem ég viðurkenni ekki, að vilja neita konum um yfirráð yfir eigin líkama. Svo er hún líka jesúnöttari og presturinn í kirkjunni hennar heldur því blákalt fram að þeir sem séu á móti Bush fari beint til helvítis. Hún hefur auk þess verið sökuð um valdníðslu í embætti og fleira og fleira. Ágætis samantekt um þetta í fréttablaðinu í dag.
Þórunn 4september2008
Já, þetta er með ólíkindum. Las viðtal við hana einhvers staðar þar sem hún sagðist styðja fóstureyðingar ef líf móðurinnar lægi við. En bara þá.
Mér finnst óhugnalegt, svo ekki sé meira sagt, þegar konur í áhrifastöðum berjast gegn réttindum kvenna.