header image
miðvikudagur, 16. apríl, 2008 [Athugasemdir:4]

Mér leiddist svakalega þar til að ég gerði merka uppgötvun. Ég áttaði mig á því að vinstra auga mitt stendur lengra út úr augntóftinni heldur en það hægra. Frá því að ég áttaði mig á þessu hef ég velt því fyrir mér hvað þetta gæti mögulega þýtt. Hér eru möguleikar sem hafa komið upp í huga minn:

1. Þetta gæti verið ástæða þess að ég er vinstrisinnuð. Sýn mín á heiminn er betri með vinstra auganu og skoðanir mínar eftir því.

2. Ég hef verið að fletta spádómum Nostradamusar svolítið upp á netinu og athuga hvort hann sá nokkuð fyrir að manneskja með útstætt vinstra auga ætti eftir að bjarga heiminum. Hef ekkert fundið um það ennþá.

3. Kannski veldur þetta sjónskekkjunni sem gerir það að verkum að ég þarf að nota gleraugu.

4. Það er möguleiki að vinstra heilahvelið sé fyrirferðarmeira en það hægra. (Sett fram án vísindalegrar þekkingar)

5. Það er ekki útilokað að andi Lisu “Left-Eye” Lopez hafi tekið sér bólfestu í líkama mínum og sé að reyna að segja heiminum eitthvað. Ef til vill er það mitt hlutverk að sjá til þess að TLC komi saman á ný.

6. Kannski  er þetta fullkomlega eðlilegt og þeir sem koma til með að lesa þetta hæðast að mér fyrir það að kunna ekki betur á lífið.

Þórunn – bara svona að pæla

4 athugasemdir

  • Hildur Karen 16apríl2008

    Vinstra augnlokið mitt er “latara” en hitt. Ég held að það sé vegna þess að vinstri menn eru í eðli sínu latari en hægri menn. (Sett fram án nokkurra heimilda eða rannsókna, tilfinning þess er setti fram ræður hér öllu)

  • Þórunn sjálf 16apríl2008

    Já, gæti verið. Eða þá að augnlokið reynir að bæta upp staðsetningu sína með því að “haardera”?

  • Þórhildur tófan 17apríl2008

    Það er TLC sem kallar!! Þú mátt ekki skerast undan því

  • Hildur Karen 17apríl2008

    Augnlokið er mjög öfundað af staðsetningu sinni svo það þarf ekkert að bæta neitt upp, þetta er næstbesti staður í heiminum fyrir auglok, sá besti er að sjálfsögðu hægra megin á mér.

Skrifa athugasemd

*
Vinsamlegast skrifaðu orðið sem birtist hér að neðan í reitinn.

Anti-Spam Image