header image
miðvikudagur, 19. nóvember, 2008

Næstu 14 dagana munum við á Samyrkjubúinu fá sendan heim að dyrum skeinipappír, í boði Sjálfstæðisflokksins. Ég bara skil ekki hvað fólk er að væla yfir aðgerðaleysi íhaldsins. Það munar nú um það að skeina sig frítt í kreppunni.

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 19. nóvember, 2008

Það verður að segjast að sálarkreppa er hvimleiðara form kreppu en fjármálakreppa. 

Það er því mikil blessun fyrir ráðamenn þessa lands að vísan, sem hann Bragi okkar Linda þreytist ekki á að fara með, skuli eiga svona vel við þá. 

[Athugasemdir: 1]
mánudagur, 17. nóvember, 2008

Þrátt fyrir að mannfjöldinn stæði þétt saman á Austurvelli á laugardaginn var þar skítakuldi. Eðilega svo sem, ég held að við vitum það orðið fullvel að það er skítkalt í skugga kapítalismans. Þegar kuldinn var farinn að bíta ansi harkalega steig á svið Viðar nokkur Þorsteinsson og hélt þá albestu ræðu sem ég hef heyrt lengi. Ég held að hann hafi náð að kveikja ansi marga vonarneista með þessari ræðu sinni og ekki er hægt að efast um mikilvægi þess, eins og staðan er í þjóðfélaginu. Raunar fannst mér allar þær ræður sem fluttar voru á Austurvelli á laugardaginn nokkuð góðar, en ræðan hans Viðars bar þó af. Hún var eitthvað svo full af baráttuhug og slíkt hefur aldrei verið mikilvægara.

Tók mér það bessaleyfi að birta hana hér.

Ræða Viðars:

Hvorki náttúruhamfarir né slys

Hvar ber að leita sökudólganna fyrir óförum Íslands? Sumir segja: alþjóðleg fjármálakreppa, og benda á ástandið í nágrannalöndunum. Aðrir segja: Davíð Oddsson, og benda á óstjórnina í Seðlabankanum. Aðrir segja: Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, og benda á spillta einkavæðinguna í valdatíð þeirra. Aðrir segja: Forstjórarnir í bönkunum. Aðrir segja: Hollendingar og Bretar.

Þessi mikli fjöldi sökudólga gerir Íslendinga ráðvillta. Umræðan hleypur í skotgrafir og sá sem gagnrýnir Davíð getur óvart lent í liði með Kaupþingsforstjóranum Sigurði Einarssyni, og sá sem gagnrýnir Breta er óvart lentur í liði með Geir Haarde. Margur grandvar Íslendingurinn hefur látið þetta hræða sig frá því að taka fullan þátt í umræðunni um hvað fór úrskeiðis, og þorir jafnvel ekki annað en að taka undir hinn vemmilega söng: „við eigum öll þátt í þessu“, „við erum öll sek“, „við megum ekki persónugera vandann“, og nú síðast: „við skulum bara ‘þjappa okkur saman’ með Bubba í Húsdýragarðinum“.

Íslendingar hafa sannarlega margoft sýnt hve færir þeir eru um óeigingjarna samstöðu, til dæmis þegar náttúruhamfarir eða stórslys ber að garði. Og til eru þær raddir sem krefjast nú slíkrar samstöðu, að okkur beri – af al-íslenskri ósérhlífni – að fylkja okkur saman um ráðamenn, kallana í brúnni, og taka á okkur efnahagslegar byrðar möglunarlaust og jafnvel með sakbitið bros á vor.

En það efnahagslega og pólitíska gjaldþrot sem nú hefur átt sér stað á Íslandi er hvorki náttúruhamfarir né slys. Það er tilkomið af manna völdum, og er afleiðing af manngerðu, hnattrænu fjármálakerfi – sem íslenskir stjórnmálamenn kusu að gera íslenskan efnahag háðan. Það voru menn sem tóku þær ákvarðanir, og í nafni hugmyndafræði sem smíðuð var af mönnum. Það er sú hugmyndafræði, það kerfi, og þeir menn, sem bera ábyrgð á því hvernig nú er komið fyrir okkur. Hvergi í heiminum annars staðar en á Íslandi var loftbóla fjármálakerfisins látin vaxa þjóðfélaginu svo mjög yfir höfuð. Hvergi í heiminum var almenningur, vinna hans og sparnaður, notaður af þvílíkri óskammfeilni sem veð til að mylja undir fámennan hóp auðmanna.

Almenningur myndi aldrei kjósa yfir sig svo mannfjandsamlega stefnu

Hvernig gerðist þetta? Hvers vegna varð Ísland að tilraunadýri fyrir öfgakenndustu og mannfjandsamlegustu vísindi nýfrjálshyggjunnar? Í bók sinni The Shock Doctrine bendir Naomi Klein á, að forvígismenn nýfrjálshyggjunnar á síðustu áratugum komu stefnu hennar ávallt í framkvæmd í gegnum bakdyrnar. Hvers vegna? Jú, einfaldlega vegna þess að skammlaus áhersla nýfrjálshyggjunnar á græðgi, sérhyggju og eiginhagsmunapot samrýmist einfaldlega ekki siðviti venjulegs fólks. Almenningur myndi aldrei kjósa svo mannfjandsamlega stefnu yfir sig sjálfviljugur, enda hefur hann augljósan hag af samábyrgð, samhjálp og öflugu velferðarkerfi. Í Chile, fyrsta fórnarlambi nýfrjálshyggjunnar, var tækifærið enda notað að innleiða hana á meðan þjóðin var lömuð eftir ofbeldisfullt valdarán.

Á Íslandi, sem heita á lýðræðisríki, virðist sem frjálshyggjunni hafi verið komið á án blóðugrar byltingar. En er þar með sagt að fólkið í landinu hafi nokkurn tímann lagt blessun sína yfir hana? Auðvitað ekki! Meira að segja innan Sjálfstæðisflokksins var þessi stefna tortryggð og olli miklum deilum, og alls staðar annars staðar í þjóðfélaginu þótti þessi stefna öfgakennd og naut hverfandi vinsælda. Hvernig tókst stjórnvöldum þá að koma hugmyndum frjálshyggjunnar í framkvæmd, þessum fjarstæðukenndu hugmyndum um ósýnilegar hendur, stækkandi kökur og gróða sem líkt og af sjálfu sér lekur frá kapítalistunum og aftur niður til almennings, hugmyndum sem eru óskiljanlegar í rökleysu sinni og óásættanlegar í siðblindu sinni?

Þetta gerðu íslensk stjórnvöld að sjálfsögðu með sömu aðferðum og þegar þau gerðu Íslendinga að stuðningsmönnum innrásarinnar í Írak – sömu aðferðum og þegar þau framkvæmdu eignarnám á réttinum til fiskveiða og afhenda hann svo klíku útgerðarmanna gjaldfrjálst. Sömu aðferðum og þegar þau fórnuðu íslenskri náttúru í þágu misheppnaðrar byggðastefnu sem erlend álfyrirtæki græða fyrst og fremst á. Það er að segja: stjórnvöld beittu þeirri aðferð, sem virðist vera fullboðleg hér á landi – þeirri aðferð að einfaldlega sniðganga gagnrýni og réttmæt sjónarmið stjórnarandstöðu og almennings, og það þótt hreinn og klár meirihluti standi gegn viðkomandi ákvörðun.

Íslensk stjórnvöld eru gjörspillt og umboðslaus

Gjörspillt valdaklíka auðmanna og flokksforingja stjórnar þessu landi. Hér er alls ekkert lýðræði, þrátt fyrir að landið sé kallað þingræðislegt lýðveldi. Ráðherrar og hagsmunahópar skrifa út lögin sem síðan er rennt í gegnum Alþingi á færibandi, dæmdir glæpamenn hljóta náðun hjá vinum sínum í ráðherrasætum og fljúga síðan inn á þing, vinir, synir og ættingjar eru ráðnir í ábyrgðarstöður, og stjórnmálamennirnir tala við almenning eins og heimtufrekan krakka þegar óhæfuverkin eru gagnrýnd. Fjölmiðlar sýna síðan sitt rétta andlit þegar þeir taka þátt í að verja siðblind og getulaus stjórnvöld á ögurstundu, og beinlínis ljúga og vísvitandi bjaga frásagnir sínar af friðsamlegum mótmælum hér á Austurvelli fyrir viku síðan.

Íslensk stjórnvöld stunda nú örvæntingarfullar tilraunir til að kría út lán frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, á sama tíma og þau neita að axla ábyrgð vegna Icesave-hneykslisins – sem þau gætu gert með því að framkvæma fjár- og eignarnám hjá hryðjuverkamönnunum í gamla Landsbankanum, nú eða segja af sér. Tilburðir stjórnvalda gagnvart gjaldeyrissjóðnum eru einfaldlega marklausir, jafnvel hlægileg: það er ekki hægt að krefjast réttinda og innheimta aðstoð á alþjóðavettvangi með hægri hendinni, á meðan svikist er undan ábyrgð í milliríkjasamskiptum með þeirri vinstri.

„Að hið íslenska lýðveldi verði stofnað upp á nýtt!“

Allir aðrir en ríkisstjórnin sjálf virðast átta sig á því, að hún er ekki tekin alvarlega. Vilhjálmur Egilsson lýsir því til að mynda yfir að nauðsynlegt sé að einkavæða ríkisbankana á ný sem fyrst, þar sem eigandinn, það er að segja íslenska ríkið, sé rúinn trausti. Það segir reyndar sitt um forgangsröðun Vilhjálms að hann telji þetta einkum vera vandamál fyrir bankana – en hvað með alla aðra þjónustu við þegna landsins sem ríkinu hefur verið treyst fyrir? Heilsugæslu, menntun, almannatryggingar og félagslega kerfið? Ef ríkinu er ekki treystandi fyrir rekstri banka, hvernig getum við þá treyst henni fyrir öðrum verkefnum?

Íslensk stjórnvöld hafa ekki umboð fólksins í landinu. Helsta áhyggjuefni þeirra er hvernig tryggja megi að forysta stjórnmálaflokkanna og íslensk auðmannastétt bíði sem minnstan skaða af þjóðargjaldþrotinu. Þessi lýðræðisskortur er alvarlegri vandi en svo að það dugi að fá eitt lán frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, eða ganga í Evrópusambandið, taka upp evru eða skipta yfir í vinstristjórn í eitt eða tvö kjörtímabil. Engin þessara þrautarlendinga mun færa okkur það sem okkur vantar helst: lýðræðislegt stjórnarfar – til þess er hið hið íslenska stjórnmála- og efnahagskerfi of samvaxið spillingunni, sérhagsmunagæslunni og samtryggingunni. Það mun fara aftur í sama farið innan fárra ára nema gripið verði til róttækra aðgerða.

Það er af þessum ástæðum sem við, óformlegur hópur ungs fólks, leggjum til að hið íslenska lýðveldi verði stofnað upp á nýtt! Þannig myndi skapast tækifæri til hreingerningar á meðal íslenskrar valda- og auðmannastéttar, hreingerningar sem er lífsnauðsyn til að eðlilegt samfélag geti þrifist hér, hvort sem er innan eða utan Evrópusambandsins, með eða án evru, undir vinstri- eða hægristjórn. Í yfirlýsingunni sem dreift hefur verið í eitt þúsund eintökum hér í dag er að finna hugmyndir okkar að nýju samfélagi, samfélagi sem grundvallist á réttlæti, jöfnuði og lýðræði – lýðræði sem er ekki forréttindi, heldur lífsnauðsyn.

Andspyrna fólksins mikilvægari en nokkru sinni

Við segjum: það eina sem hrífur nú er að almenningur í landinu taki völdin yfir stjórnkerfinu og auðlindunum, sem setið hafa áratugum saman í gíslingu sömu auðmanna og flokksforingja. Í kreppuástandi er þetta ennþá mikilvægara en ella, því það er hafið yfir allan vafa að valdastéttin er þegar byrjuð að leggja á ráðin um hvernig hún geti nýtt sér óvissuna og ráðleysið: Til dæmis til að einkavæða orkuauðlindirnar, heilbrigðiskerfið, og að sjálfsögðu bankana – í þetta sinn þannig að þeir rati alveg örugglega í réttar hendur. Það er einmitt í slíku upplausnarástandi sem valdastéttin notar tækifærið að koma í gegn óvinsælustu og umdeildustu stefnumálum sínum. Þá er andspyrna fólksins mikilvægari en nokkru sinni.

Reiði okkar er á suðupunkti. Valdhafar og auðmenn beita fyrir sig fjölmiðlunum – sem þeir að sjálfsögðu eiga – til að gera lítið úr reiði okkar og spila niður kraftinn og samstöðuna sem nú ríkir meðal landsmanna. Þannig er beinlínis logið að þeim sem ekki eiga heimangengt hingað niður á Austurvöll, logið um að hér sé hættulegur skríll á ferðinni. Hvers vegna eru valdhafar í áróðursstríði gegn fólkinu í landinu? Það er vegna þess að þeir eru hræddir, loksins hræddir við fólkið í landinu, fólkið sem heita á að þeir vinni fyrir.

Með yfirlýsingunni um nýja lýðveldisstofnun orðum við róttæka kröfu okkar – kröfu sem má ekki slá á frest. Sá mikli efnahagsvandi sem Ísland stendur nú frammi fyrir verður byrði okkar kynslóðar sama hversu vel eða illa tekst til í lánagjörningum; en látum það ekki henda okkur að eignir okkar verði í asa björgunaraðgerðanna settar á uppboð enn eina ferðina: líkt og kvótinn, líkt og bankarnir, líkt og hálendið.

Akkúrat núna er sögulegt tækifæri til að stokka spilin upp á nýtt, tækifæri sem kemur kanski ekki aftur á meðan við lifum: Við sem þurfum að taka á okkur skuldirnar skulum ekki gefa neinn afslátt af kröfunni um að Íslandi framtíðarinnar verði loksins stýrt með hliðsjón af hagsmunum okkar: réttlæti í stjórnarfari, jöfnuði í samfélaginu og, umfram allt, lýðræði án skilyrða.

[Athugasemdir: 7]
fimmtudagur, 13. nóvember, 2008

Tófan mín, sambýliskona, rebel og heimspekingur með meiru, á afmæli í dag. Ég hef ekki hitt hana síðan rétt eftir miðnættið í gærkvöldi og hef því hvorki náð að halda upp á daginn með henni og hvað þá gefa henni gjöf.

Með hjálp google komst ég að því að hún er óvenju gömul af villtri tófu að vera. Auk þess fann ég þónokkuð af vafasömum upplýsingum um hana…

*Tófa leggst á fé í Ísafjarðardjúpi

*Tófa beit konu

*Friðuð tófa eyðir fuglalífi

*Tófa völd að útafkeyrslu

*Tófa ræðst á lömb í Breiðavík

 

Hún er nú samt vænsta grey þessi elska…

[Athugasemdir: 0]
þriðjudagur, 11. nóvember, 2008

Mótmælin á Austurvelli á laugardaginn voru sannarlega áhugaverð. Byltingarhjartað barðist svolítið hraðar við að finna samstöðuna og byltingarandann sem ríkti í miðborginni, og allt ætlaði um koll að keyra þegar hetja dagsins dró Bónusfánann að húni á þaki Alþingishússins. Bláar hendur í pressuðum skyrtuermum, skreyttum ermahnöppum sem sennilega kosta mánaðarlaun margra smælingjanna, teygðu sig þó fljótt út um þakglugga hins háa Alþingis og fjarlægðu flaggið. Þar með var enn eitt svínið komið í hús.

Það sem mér fannst hins vegar setja svartan blett á mótmælin voru ekki reið skoðanasystkini mín sem köstuðu eggjum í spillingarhöllina. Það gerði heldur ekki fólkið sem með ótrúlegri samstöðu kom í veg fyrir að hinn nýi fánaberi íslenska lýðveldisins yrði tekinn höndum. Ónei. Það voru tilraunir skipuleggjenda mótmælanna til að leikstýra samkomunni. Hörður Torfason fór þar fremstur í flokki og reyndi að siða almúgann til eftir sínu eigin höfði. Hann lét ekki þar við sitja, heldur leyfir hann sér einnig að koma fram í fjölmiðlum eftir á og kalla fólkið sem mótmælir spillingu valdastéttarinnar, rétt eins og hann sjálfur, trúða. Hörður hefur einnig gefið það í skyn, að ef “fólk ætli að haga sér svona”, þá leggist mótmælin af og skoðanir fólksins fái ekki að koma fram.

Ég skal segja þér það Hörður, að þrátt fyrir að þú ákveðir að leggja mótmælaskóna á hilluna, þá er til fólk, þar á meðal ég sjálf, sem mun samt mæta á Austurvöll og mótmæla. Ekki voga þér að reyna að drepa niður samstöðu fólksins innan frá með þínum kreddulegu hugmyndum um siðprúð mótmæli. 

Fyrir mér eru allar tegundir mótmælaaðgerða leyfilegar og kærkomnar, nema auðvitað þær feli í sér ofbeldi. Ofbeldi átti sér ekki stað á Austurvelli á laugardaginn og þeir einu sem gerðu sig líklega til að beita slíku voru skósveinar glæpaforingjanna, sjálfir laganna verðir. Ég fagna því að fólk leyfi sér að láta reiði sína og andúð á auðvaldinu í ljós, hvort sem það gerir það með öskrum og látum, eggjakasti, söng, táknrænum gjörningum, fánabrennum, áróðursskiltum, með því að mæta og sýna stuðning, eða á hvern þann hátt sem því dettur í hug. Það er því sorglegt að sjá sjálfskipaðan talsmann hópsins setjast í dómarasætið og gera tilraun til að berja niður mótmælaandann og byltinguna. Slíkt hélt ég að aðeins einn maður leyfði sér að gera. Sá maður hefur hagsmuna að gæta, ekki þjóðarinnar, heldur sinna eigin. Sá maður er sökudólgurinn, og um leið tákn þeirrar spillingar sem við mótmælum öll svo kröftuglega. Sá maður leyfir sér að loka augunum fyrir kröfum þjóðarinnar og kalla hana skríl. Maðurinn sá er auðvitað hinn sjálfhverfi og hrokafulli eiginhagsmunaseggur Geir Hilmar Haarde.

[Athugasemdir: 0]
laugardagur, 8. nóvember, 2008

Ég ætla að skunda niður á Austurvöll og henda nokkrum reikningum á eftir. Skora á sem flesta til að mæta og sýna hvað okkur finnst um skuldirnar sem ríkisstjórnin hefur og ætlar sér að leggja á herðar okkar og komandi kynslóða. Ég hef ekki áhuga á því að skulda Varnarmálastofnun, Kárahnjúkavirkjun, Þjóðkirkju, einkaþotur eða annan viðlíka óþarfa.

Nánar hér.

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 30. október, 2008

Ég vissi alltaf að Sarah Palin væri góð í einhverju.

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 27. október, 2008

Datt inn á atvinnuauglýsingar á visir.is í dag. Þær voru hvorki margar né áhugaverðar, en það var þó ein sem vakti athygli mína sérstaklega..

“Seðlabankastjóri óskast! Seðlabanki Alþýðunnar leitar að hagfræðimenntuðum, óflokksbundnum aðila sem á auðvelt með mannleg samskipti, sýnir yfirvegun í starfi, hefur almannahagsmuni að leiðarljósi og axlar ábyrgð af miklu æðruleysi. Áhugasamir sendi umsóknir á sedlabankinn@gmail.com”

Ætli Baugsfeðgar hafi sent þetta inn sjálfir?

[Athugasemdir: 0]
föstudagur, 24. október, 2008

..er dagur sem skipar sérstakan sess í hugum margra íslenskra kvenna, þar á meðal mínum. Til hamingju með daginn systur!

Það er þó ein kona sem er mér ofar í huga en aðrar í dag. Hún Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir, móðir mín með meiru, á afmæli á þessum merkisdegi. Samkvæmt nýjustu tölum er hún nú búin að vera móðir mín hálfa ævina, en það verður að teljast nokkuð vel af sér vikið.

Scan10014.jpg picture by tholafs

Til hamingju með daginn mamma mín!

[Athugasemdir: 4]
mánudagur, 13. október, 2008

photo020.jpg picture by tholafs

[Athugasemdir: 0]

« Fyrri skrif