Þessi pása ekki orðin fín bara?
Einhvernveginn held ég að þessi pása sé bara orðin allgóð.
Þótt það hljómi sennilega ekkert einkennilega þá hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan ég var hérna að stunda skrif síðast. Svo eitthvað sé nú talið upp hef ég til dæmis flutt mig í annan landshluta. Farinn er ég úr ljúfa og friðsæla lífinu fyrir austan yfir í sukkið, spillinguna og sorann hingað í höfuðborgina. Hérna er andinn allt annar og stressið mun meira, svo eitthvað sé nú sagt þá er útil0kað mál að skreppa eitt né neitt hérna á þessum stað. Allt sem þú ferð, hvert sem þú ferð, tekur þig allavega klukkustund. Skreppa í skólann…. já einmitt….það er 8 - 20 mínútna ferðalag fyrir mig (sem telst frekar lítið held ég) og 15 - ? mínútna ferðalag fyrir konuna.
Já alveg rétt….það er eitt það merkilega…sennilega merkilegasta sem hefur á daga mína drifið frá því ég pikkaði síðast hér inn eitthvað raus. Mér tókst….já mér að ná mér í svona líka yndislega kærustu, hana Svandísi Kötlu Sveinsdóttur. Hún er köngull frá innstu hjartarótum, Egilsstaðamær í fremsta flokki. Fluttum við bæði suður í spillinguna og hófum nám við það sem við höfum bæði áhuga á að læra, hún í hárgreiðslu og stúndentsprófi og ég í bifvélavirkjun og sennilega stúdentsprófi líka.
Mér finnst ég vera búinn að skrifa svo mikið núna, sennilega vegna þess að ég er að henda niður svo miklum texta á stuttum tíma miðað við allan tímann sem ég skrifaði ekki neitt þannig að þetta verður bara að koma hingað inn í skömtum. Það verður sennilega samt ekki eins löng bið í næsta pistil.
4 commentsHvar er lífið sem áður þekktist??
Jæja gott fólk, hvernig stendur á því að það er föstudagur og maður er ekki búinn að frétta af einu einasta djammi eða teiti hjá nokkrum manni? Þar sem björgunaræfingarleiðangur til Djúpavogs City var blásinn af þá hefur maður gott af því að gera sér glaðann dag og hitta fólk. Nú þarf að grafast fyrir um teiti og annað slíkt. Látið heyra í ykkur ef eitthvað er fyrirsjáanleg skemmtun og gleði undir þaki einhversstaðar.
4 commentsTýpískt !
Alltaf skal þetta vera eins, manni skal alltaf takast að slasa sig eitthvað. Allavega var ég svo heppinn að þruma tengijárni í andlitið á mér með þeim afleiðingum að næsta sem ég vissi var að ég stóð þarna í miðjum húsgrunni eins og hinn besti blóðgjafi. Þvílíkt magn sem getur sullast við svona lítið sár, þetta leit ekki vel út og var búið að hringja í ökumann til að koma mér á Eskifjörð en þegar allt kom til alls var þetta bara smá skeina en reyndar grunsamlega djúp. Þetta þýðir bara gott glóðurauga og bólga í fyrramálið. Já ég held að maður reyni að láta þetta sér að kenningu verða og fari að ganga um eins og leikskólabarn í gulu vesti, með hjálm, hlífðargleraugu og skothelt vesti eins og Alcoa starfsmenn. Reyndar gæti maður verið að vinna þar núna á næstuninni. Það verður forvitnilegt að prófa svoleiðis æfingar.
6 commentsAfmeyjun
Já ótrúlegt en satt hefur maður aldrei orðið svo frægur að fá að “blogga”. Þetta er frumraun, skemmtilegt að vissu leiti en vonandi kemur maður til með að vera duglegur að stunda þessa nýju hliðargrein.
5 comments