header image
Monday, 14. June, 2010 [Athugasemdir:0]

Á tveggja ára fresti fæ ég fótboltadellu. Á HM og EM. Sérstaklega finnst mér HM skemmtilegt mót en þetta er í eina skiptið sem maður fær tækifæri til að sjá þjóðir eins og Norður-Kóreu, Alsír eða Ghana spila fótbolta. Maður er að horfa á eitthvað sem er truly internasjónal.

Mín fyrsta HM minning tengist Spáni ‘82. Það er fyrsta mótið sem ég man eftir. Ég man hvað Keli var svekktur þegar Brassarnir duttu út og ég man hvað ég var svekktur þegar V-Þýskaland tapaði fyrir Ítalíu í úrslitaleiknum. Aha. Á sjöunda ári byrjaði ég að halda með Þjóðverjum og síðan þá hefur hjarta mitt ávallt slegið með þeim.

Þýska vélin. Hvað skal segja. Þetta er hugmynd sem snýst um að Þjóðverjar spili vélrænan fótbolta. Varnarmiðaðan og leiðinlegan. Þetta mátti svosem segja um Þjóðverjana sem unnu árið 1990 og reyndar voru þeir ekki með skemmtilegt lið á tíunda áratugnum en frá aldamótum eða svo hefur Þýskaland alltaf verið með eitt besta liðið. Vel spilandi sóknarlið sem skorar mörk.

Þannig var t.d. liðið sem malaði Ástrala í gær.

Ekki að ég haldi að þeir vinni. Nei, það verður leiðinlegt varnarlið sem vinnur núna. Brasilía, Frakkland eða eitthvað svoleiðis.

Engin athugasemd

Engar athugasemdir

Skrifa athugasemd

*
Vinsamlegast skrifaðu orðið sem birtist hér að neðan í reitinn.
Anti-spam image