header image
Sunday, 30. May, 2010 [Athugasemdir:12]

Framboðslisti Fjarðalistans varð til einhvern tímann í mars og þótt ég hafi einungis hafið formleg afskipti af þessu framboði í byrjun maí (sem kosningastjóri) hef ég fylgst vel með þróun mála frá upphafi enda konan mín á lista. Það fór ekki á milli mála að það yrði á brattann að sækja í þessum kosningum. Hvers vegna?

Jú, í fyrsta lagi var listinn skipaður nýju fólki en þótt gerð hafi verið mikil krafa um nýliðun í stjórnmálum á landsvísu var þetta það helsta sem andstæðingar sáu gagnrýnivert við framboðið. Þeir gerðu það vegna þess að það hentaði þeim í kosningabaráttunni og er svosem ekkert við því að segja. Þeir voru jú í kosningaslag. Eina manneskjan sem trúir því í alvörunni að frambjóðendur Fjarðalistans hafi verið þjakaðir af reynsluleysi er Elma Guðmundsdóttir.

Í öðru lagi átti Fjarðalistinn í vök að verjast áður en nýr framboðslisti var kynntur. Í Neskaupstað, þar sem ég þekki best til, tengdist þetta svokölluðu “bæjarskrifstofumáli”, en einn eldri herramaður þar sagði við mig viku fyrir kosningar að Norðfirðingum fyndist Fjarðalistinn hafa svikið sig.

Ég hef ekki skoðun á þessu en engu að síður var þetta viðhorf ríkjandi framan af kosningabaráttunni. Ég er ekki frá því að menn hafi verið reiðubúnir að fyrirgefa Fjarðalistanum undir það síðasta en því miður fóru alltof fáir á kjörstað.

Og það er lykilatriði.

Áhugaleysið í Fjarðabyggð skilaði sér í lélegri kjörsókn og að þessu leyti líkist stjórnmálalífið í Fjarðabyggð stjórnmálalífinu í landinu almennt. Er ég þess fullviss að einhverskonar Biðlisti hefði rakað til sín fylgi í þessum kosningum og ég ætla að ganga miklu lengra: Hefði framboð Fjarðalistans 2010 skipt um nafn hefði það örugglega fengið hreinan meirihluta.

Það eru engin sérstök tíðindi að Fjarðalistinn hafi tapað fylgi og menn væru líklega ekki jafn uppteknir af þessu nema vegna þess að listanum var spáð yfir fjörutíu prósent fylgi í síðustu viku. Miðað við þá spá eru kosningarnar vissulega mikill ósigur. En miðað við að Fjarðalistinn er og hefur verið “valdaflokkurinn” í Fjarðabyggð er tapið ekki stórt og sigur sjálfstæðismanna þar af leiðandi fremur lítill.

Samt verður ekki horft framhjá því að Fjarðalistans bíður mikið uppbyggingarstarf. Ég trúi ekki öðru en að mikil eftirspurn sé eftir alvöru félagshyggjuafli í Fjarðabyggð og treysti því að Elvar og kó vinni vel á kjörtímabilinu, að þau njóti þess hreinlega að vera í stjórnarandstöðu.

Enda djöfull hlýtur það að vera gaman!

12 athugasemdir

  • Elma Guðmundsdóttir 30May2010

    Takk fyrir að muna eftir mér félagi. Mér líður eins og “landasvíkjara” en það er orðið yfir liðhlaupa – á færeysku. Verð að hryggja þig með því að segja þér að ég hef ekki talið frambjóðendur Fjarðalistans “þjakaða” af reynsluleysi, en það verður ekki framhjá því litið að þrátt fyrir allt þá er þetta reynslulítið eða reynslulaust fólk á sviði sveitarstjórnarmála, en ég hefði ekki tekið þátt í kosningarbaráttu listans ef ég hefði ekki haft trú á honum. Reyndar hélt ég alltaf að hvert framboð myndi fá 3 fulltrúa en því miður svo bregðast krostré sem önnur tré. Mér er nokk sama þó þú skeytir skapi þínu og ósigri á mér, ég stend við það sem ég sagði í blogginu mínu, frambjóðendur Fjarðalistans unnu einfaldlega ekki heimavinnuna sína.

  • Ingibjörg Þórðar 30May2010

    Ég er sammála því að líklega eru óvinsælar ákvarðanir bæjarfulltrúa Fjarðalistans á kjörtímabilinu að koma honum í koll núna. Þar sem algjör endurnýjun varð á listanum hefði auðvitað verið bráðsnjallt að bjóða hreinlega fram nýjan flokk undir nýju nafni. Þá væri ég kannski ekki búsett í sveitarfélagi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn en það á ég mjög erfitt að sætta mig við.
    Kannski hefðum við í VG getað bjargað þessu með því að bjóða fram.

  • JKÁ 30May2010

    Þú hefur þrástagast á þessu reynsluleysi og þess vegna tek ég svona til orða. Þú viðrar skoðanir þínar á mönnum og málefnum opinberlega og það hefur ekkert með skap mitt að gera þó ég gagnrýni þær. Taktu því bara eins og maður og skilgreindu snöggvast orðið “heimavinna” fyrir mig. Í hverju er hún fólgin?

  • Jón Knútur 30May2010

    Ingibjörg:

    Fjarðalistinn þarf á fólki eins og þér að halda. Við tökum þetta næst.

  • Guðmundur R Gíslason 31May2010

    Allt satt og rétt hjá þér. Fleira má upp telja sem hafði áhrif. XD tókst að setja fram hræðsluáróður sem rataði alla leið inn á Rúv (sem er ótrúlegt) um að þeir einir flokka væru á móti sameiningu Austurlands. Fyrningarleið í sjávarútvegi hafði áhrif og margir sem sáu enga leið aðra í þeim efnum en að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Ekki má svo gleyma því að Smári Geirsson naut trausts á sínum tíma út fyrir okkar raðir sem skilaði atkvæðum síðast (með fullri viðringu fyrir núverandi frambjóendum). Svo voru gömul skrif Estherar rifjuð upp í aðdraganda kosninga og það gerði það að verkum að sumir sátu heima. “Úff Neskaupstaður” var eitt þeirra.

  • Esther 31May2010

    Guðmundur:

    Færslan “Úff. Norðfjörður.” sem þú vísar til er hér: http://www.raudhausar.com/esther/?p=2456

    Ég hef mikinn áhuga á að vita hvernig þessi rúmlega ársgamla kaldhæðnisstríðni í garð Jóns Knúts gat mögulega orðið til þess að einhverjir sátu heima í sveitarstjórnarkosningunum í Fjarðabyggð. Guðmundur, viltu plís útskýra. Ég skil það ómögulega.

  • Guðmundur R Gíslason 31May2010

    Nei Esther, það eru líka önnur skrif en ég ætla ekki ræða það hér né annars staðar, sumir skilja hvorki kaldhæðni né grín ef það hentar þeim.

  • Gunnar Geirsson 31May2010

    Guðmundur! Ég ólst nú upp við nokkuð hatramma pólitíska baráttu í Hafnarfirði í sínum tíma. Þetta “plan” ykkar Norðfirðinga er alger nýjung fyrir mér. Ómálefnalegra og barnalegra þvaður hef ég aldreið séð. Ég er farinn að skilja betur þörf ykkar Norðfirðinga fyrir nýjan og endurbættan leikskóla. Vonandi verður deildin fyrir leikskólabörn með kosningarétt ekki mjög fjölmenn. Okkar allra vegna!

  • Arnar 31May2010

    Íslendingar um allt land gáfu skít í þessar kosningar með einum eða öðrum hætti vegna þess að þjóðin hefur fengið uppí kok af pólitík. Fyrrum forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð heldur hins vegarað léleg kosningaþátttaka tengist gömlum plötudómi sem Ester Ösp skrifaði. Annað hvort er þetta súrrealískt grín eða veruleikafirring á mjög háu plani. Plani Norðfirðinga kannske?

  • Jón Knútur 31May2010

    Það var nú bara fyrst í dag sem einhver sagði við mig að “sameiningarútspil” sjálfstæðismanna hefði haft áhrif á úrslitin. Þetta kom upp viku fyrir kosningar og ég trúði því einfaldlega ekki að svona ómerkilegt skrum gæti haft áhrif á fólk. En kannski var það, svona eftir á að hyggja, snilldarlegt bragð hjá Jens og kó að spila á óvenju stækt Héraðshatur í Fjarðabyggð þessi misserin. Lágkúrulegt en sniðugt. Allavega effektívt. Býst ég við.

  • Guðmundur R Gíslason 31May2010

    Stærsti áhrifavaldurinn var örugglega skoðanakönnunin. Hinir tvíefldust og mörgum fannst nóg um okkar fylgi. Úrslitin hefðu verið hliðhollari okkur hefði hún ekki birst. Samt sem áður eru þetta ekki slæm úrslit – ekki að mínu mati. Elskum friðinn!

  • Guðfinna 31May2010

    Það er alveg klárt mál að Jens Garðar rótaði til sín atkvæðum á íbúafundi hér á Fáskrúðsfirði, þegar málefni áhaldahússins ofl.voru til umræðu. Þau atkvæði duttu af einhverjum öðrum -þannig er það bara. Engann hér hef ég heyrt tala um að þeir ætluðu að kjósa Fjarðalistann útá frammistöðu hans bæjarfulltrúa á sama fundi – því miður verð ég að segja -en þeir skinu ekki skært á þessum fundi, þrátt fyrir mikla reynslu og dadada…….
    Sorry!

Skrifa athugasemd

*
Vinsamlegast skrifaðu orðið sem birtist hér að neðan í reitinn.
Anti-spam image