header image
Saturday, 8. May, 2010 [Athugasemdir:0]

…ég hef séð (á þá á ég ekki við á tónleikum) er án nokkurs vafa Paul Stanley í Kiss. Hann stóð fyrir aftan mömmu mína í biðröð í flugstöðinni í Keflavík. Árið var 1987 og Kiss voru enn þá nokkuð heitir. Mig minnir að þeir hafi verið hávaxnir en allavega vakti hið stóra og mikla eitís hár strax athygli á þeim. Paul hélt á viskíflösku og sagði eitthvað við mömmu. Ég minnist þess ekki að mamma hafi tekið eftir Paul Stanley eða brugðist á nokkurn hátt við þegar hann talaði við hana.  Hefði hún tekið eftir honum hefði henni staðið á sama því auðvitað vissi hún ekkert hver Paul Stanley var. Ég vona að ég muni aldrei komast að því hvað Paul sagði við mömmu í biðröðinni í flugstöðinni í Keflavík.

Engin athugasemd

Engar athugasemdir

Skrifa athugasemd

*
Vinsamlegast skrifaðu orðið sem birtist hér að neðan í reitinn.
Anti-spam image