header image
Thursday, 1. April, 2010 [Athugasemdir:0]

Við Rauðhausar klikkum ekki á að bjóða fólki lágmarks afþreyingu yfir páska.

Í boði er eftirfarandi:

Þrjú hlaðvörp um Eistnaflugshátíðina í Neskaupstað sem fram fór dagana níunda til tólfta júlí í fyrrasumar. Þar var JKÁ staddur með vini sínum Sigga Ó og saman gerðum við eitt og annað í fyrsta skiptið (til að forðast misskilning þá fórum við sumsé í moshpyttinn síðasta kvöldið). Þarna eru viðtöl við allskonar fólk, misjafnlega ölvað en allir í ólýsanlega góðu skapi. Upphaflega átti þetta að vera þáttur fyrir Rás 2 en þegar upp var staðið fannst JKÁ að þættirnir ættu betur heima á þessum vettvangi.

En sumsé. Þið finnið Eistnaaflugstrílógíuna hér.

Í öðru lagi verður boðið upp á bónusefni við þættina ”Fagurfræði dauðans” sem verða á dagskrá Rásar 2 í dag, morgun og annan í páskum. Þættirnir fjalla um trúverðugleika og dægurtónlist – hið ekta – og í þeim er m.a. rætt við félagsfræðinginn Gest Guðmundsson og þjóðfræðinginn Valdimar Hafstein. Eins og alltaf var aðeins hægt að nota brotabrot af þeirri visku sem þeir miðluðu en vegna þess hversu dásamlegt þetta svokallaða “internet” er hægt að setja viðtölin hingað inn í fullri lengd ykkur til gagns og gamans.

Viðtölin eru aðgengileg á hlaðvarpssíðunni.

Engin athugasemd

Engar athugasemdir

Skrifa athugasemd

*
Vinsamlegast skrifaðu orðið sem birtist hér að neðan í reitinn.
Anti-spam image