header image
Sunday, 27. December, 2009 [Athugasemdir:0]

Sumarið ‘95 heimsótti ég Dadda vin minn til Svíþjóðar. Mikil ævintýrareisa en þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ég hef sofið á lestarpalli. Tilgangur reisunnar var að sjá Neil Young á tónleikum í Hróaarskeldu (ekki hátíðinni) en eins og gengur og gerist í ferðalögum hætti tilgangurinn fljótlega að skipta máli. Það sem skipti máli voru dýrðlegar kjötbollusamlokur sem seldar voru á eftirlætis bar gestgjafans og frábærar plötubúðir í Lundi.

Eitt kvöldið fórum við á tónleika með einhverjum gæja sem kallaði sig Vic Chestnutt. Hann kom frá Suðurríkjunum og Daddi, framsækin sem hann var, sagði Vic þennan vera “snilling”.

Það var fátt sem gaf snilligáfuna til kynna þegar Vic renndi sér á sviðið, lítill og væskilslegur, í hjólastól. Svo byrjaði konsertinn. Og vá.

Skýrasta minningin sem ég á af þessum tónleikum er engu að síður bara trommusettið sem samanstóð af bassatrommu, snerli og einum diski. Bassatromman sneri á hlið, stóð á kassa og trommarinn sló í hana með kjuða! Hafði aldrei séð annað eins. Síðan þá hef ég alltaf fylgst með Vic. Keypt eina og eina plötu og get hiklaust mælt með About to Choke sem einni bestu plötu sinnar tegundar (tegundin er alt köntrí) og Is the Actor Happy? er lítið síðri. Í þáttunum mínum um Ameríkana sem voru á dagskrá Rásar 2 fyrr á þessu ári fannst mér gaman að geta spilað Vic en það var líka undarlegt að kynna hann fyrir hlustendum sem nær óþekktan listamann. Eftir öll þessi ár!

Hvað um það. Vic barðist við þunglyndi í mörg ár og gafst upp fyrir sjúkdómnum um jólin. Tók of stóran skammt af einhvers konar verkjalyfjum, sofnaði djúpum svefni og hvarf loks yfir móðuna miklu á jóladag.

Ég fann þessa frábæru upptöku með honum úr frönskum sjónvarpsþætti í morgun. Þetta er um svipað leyti og ég sá hann, trommusettið nákvæmlega eins og það var á tónleikunum í Lundi. Fékk flashbakk þegar blísturskaflinn byrjaði: Við Daddi fullir saman á einhverjum pínulitlum tónleikastað í Skandínavíu að hlusta á einhvern “snilling” úr Suðrinu djúpa. Mikið vorum við góðir vinir! Mikið vorum við fínt dúó!

Engin athugasemd

Engar athugasemdir

Skrifa athugasemd

*
Vinsamlegast skrifaðu orðið sem birtist hér að neðan í reitinn.
Anti-spam image