- heimasíða Jóns Knúts Ásmundssonar.
Ég veit ekki lengur fyrir hvern þetta blogg er. Ég bloggaði nær daglega í tvö ár og hinir ímyndaðu lesendur voru vinir sem ég var í of litlu sambandi við. Facebook og raunverulegir vinafundir hafa sennilega gert útaf við Knútinn (sem þið elskið enn). Og svo kallar þetta dagbókarform eiginlega bara á tvennt: Naflaskoðun og nöldur. Og ég nenni hvorugu. Er ágætlega sáttur við sjálfan mig og styð ríkisstjórnina. Semsagt: Why bother?
…
En fáeinar fréttir af sjálfum mér sem passa ekki sem Facebook-status:
1. Ég hóf nám í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands í haust. Er að klára fyrstu önn af þremur (verði ég duglegur) og mér líkar námið vel. Þetta er svona blanda af teóríu og praktík og stórfínt áhugamál um helgar. Ég veit ekki hvort þetta leiðir til einhvers en ég vona það. Er á meðan er. Í það minnsta.
2. Fyrir hálfum mánuði bauðst mér að skrifa mússíkrýni fyrir nýjan vef sem heitir Miðjan. Hef ekki skoðað þennan vef alminilega og get því voðalega lítið sagt um hann. Sýnist þetta vera ósköp mjúkt og notalegt en þið tékkið bara á honum sjálf. Búnað skrifa um nýju plötuna frá Lay Low. Hún var fremur tilþrifalaus en ég fíla Lay Low svo þetta er allt í lagi hjá henni. Svo birtist væntanlega eitthvað um nýja stöffið frá Leaves og Mannkornum.
3. Ég reifst við afgreiðslumanninn í ræktinni í gær en ég er búinn að fá mig fullsaddan af raflostmeðferðinni sem manni er boðið uppá á þessum andskotans hlaupabrettum í líkamsræktinni á Rey. Í gær fékk ég svo hressilegt stuð í eyrað að það var engu líkara en að einhver hefði slegið mig þéttingsfast með flötum lófa beint á eyrað. Ég vona að mér sé fyrirgefið en ég truflaðist sumsé old school-style og uppskar því auðvitað ekkert annað en að ég væri dóni.
Stundum er mér svo illa við opinbera starfsmenn að Heimdellingar líta út eins og marxistar í samanburði við mig.
Siggi Óla 5December2009
Sammála. Maður veit orðið ekki almennilega fyrir hvern eða til hvers maður bloggar. En svo lendir maður alltaf í því annað slagið að einhver byrjar að spjalla um eitthvað sem maður bloggaði um…segist jafnvel hafa haft gaman af.
En…ég les þig a.m.k. alltaf!
Hilmar 6December2009
Skondin tilviljun. Ég var rétt í þessu að bæta við færslu á blogginu mínu og ég var að velta fyrir mér … til hvers? Er ekki feysbúkkið búið að drepa allt blogg? Ætli ég geti ekki talið á fingrum annarrar handar alla þá sem les þetta blogg mitt, en ég ákvað að gefast ekki upp. Ég held að bloggið sé langlífara fyrirbæri og það fer meiri hugsun í það.