- heimasíða Jóns Knúts Ásmundssonar.
Framboðslisti Fjarðalistans varð til einhvern tímann í mars og þótt ég hafi einungis hafið formleg afskipti af þessu framboði í byrjun maí (sem kosningastjóri) hef ég fylgst vel með þróun mála frá upphafi enda konan mín á lista. Það fór ekki á milli mála að það yrði á brattann að sækja í þessum kosningum. Hvers vegna?
Jú, í fyrsta lagi var listinn skipaður nýju fólki en þótt gerð hafi verið mikil krafa um nýliðun í stjórnmálum á landsvísu var þetta það helsta sem andstæðingar sáu gagnrýnivert við framboðið. Þeir gerðu það vegna þess að það hentaði þeim í kosningabaráttunni og er svosem ekkert við því að segja. Þeir voru jú í kosningaslag. Eina manneskjan sem trúir því í alvörunni að frambjóðendur Fjarðalistans hafi verið þjakaðir af reynsluleysi er Elma Guðmundsdóttir.
Í öðru lagi átti Fjarðalistinn í vök að verjast áður en nýr framboðslisti var kynntur. Í Neskaupstað, þar sem ég þekki best til, tengdist þetta svokölluðu “bæjarskrifstofumáli”, en einn eldri herramaður þar sagði við mig viku fyrir kosningar að Norðfirðingum fyndist Fjarðalistinn hafa svikið sig.
Ég hef ekki skoðun á þessu en engu að síður var þetta viðhorf ríkjandi framan af kosningabaráttunni. Ég er ekki frá því að menn hafi verið reiðubúnir að fyrirgefa Fjarðalistanum undir það síðasta en því miður fóru alltof fáir á kjörstað.
Og það er lykilatriði.
Áhugaleysið í Fjarðabyggð skilaði sér í lélegri kjörsókn og að þessu leyti líkist stjórnmálalífið í Fjarðabyggð stjórnmálalífinu í landinu almennt. Er ég þess fullviss að einhverskonar Biðlisti hefði rakað til sín fylgi í þessum kosningum og ég ætla að ganga miklu lengra: Hefði framboð Fjarðalistans 2010 skipt um nafn hefði það örugglega fengið hreinan meirihluta.
…
Það eru engin sérstök tíðindi að Fjarðalistinn hafi tapað fylgi og menn væru líklega ekki jafn uppteknir af þessu nema vegna þess að listanum var spáð yfir fjörutíu prósent fylgi í síðustu viku. Miðað við þá spá eru kosningarnar vissulega mikill ósigur. En miðað við að Fjarðalistinn er og hefur verið “valdaflokkurinn” í Fjarðabyggð er tapið ekki stórt og sigur sjálfstæðismanna þar af leiðandi fremur lítill.
Samt verður ekki horft framhjá því að Fjarðalistans bíður mikið uppbyggingarstarf. Ég trúi ekki öðru en að mikil eftirspurn sé eftir alvöru félagshyggjuafli í Fjarðabyggð og treysti því að Elvar og kó vinni vel á kjörtímabilinu, að þau njóti þess hreinlega að vera í stjórnarandstöðu.
Enda djöfull hlýtur það að vera gaman!
[Athugasemdir: 12]
…ég hef séð (á þá á ég ekki við á tónleikum) er án nokkurs vafa Paul Stanley í Kiss. Hann stóð fyrir aftan mömmu mína í biðröð í flugstöðinni í Keflavík. Árið var 1987 og Kiss voru enn þá nokkuð heitir. Mig minnir að þeir hafi verið hávaxnir en allavega vakti hið stóra og mikla eitís hár strax athygli á þeim. Paul hélt á viskíflösku og sagði eitthvað við mömmu. Ég minnist þess ekki að mamma hafi tekið eftir Paul Stanley eða brugðist á nokkurn hátt við þegar hann talaði við hana. Hefði hún tekið eftir honum hefði henni staðið á sama því auðvitað vissi hún ekkert hver Paul Stanley var. Ég vona að ég muni aldrei komast að því hvað Paul sagði við mömmu í biðröðinni í flugstöðinni í Keflavík.
[Athugasemdir: 0]