- heimasíða Jóns Knúts Ásmundssonar.
Lélegasta bók sem ég hef lesið síðustu misserin er starfsævisaga Jónasar Kristjánssonar hvers nafn ég lagði ekki á minnið. Hún heitir örugglega “Óttalaus” eða eitthvað í þeim dúr. Jónas er líklega eitt mesta montrassgat á landinu – þótt víðar væri leitað – en hugsanlega lít ég einungis svo á málin vegna þess að ég kem úr fjölskyldu þar sem lagt er blátt bann við að segja frá afrekum sínum. Maður blæs ekki í sitt eigið trompet!
Jónas birtist manni sem senílt gamalmenni í heimi sem versnandi fer. Maður missir fljótlega tölu á öllu því stórkostlega sem Jónas hefur fundið upp í gegnum tíðina en hann mun meðal annars hafa fundið upp rannsóknarblaðamennskuna svo eitthvað sé nefnt. Fólkið sem hann hefur hitt á lífsleiðinni er annað hvort fífl eða ekki svo mikið fífl en almennt má segja að það rúmist tveir litir fyrir í litrófi ritstjórans: Kolsvart og grátt.
Ég náði ekki að klára bókina, átti sirka þriðjung eftir þegar ég lagði hana frá mér. Mér leið illa. Eins og ég hefði drukkið lélegan landa. Ég spurði mig: Hvers vegna á þessi maður svona marga aðdáendur? Ég vann undir stjórn hans í tíu daga haustið 2005 og ég man að mér fannst ritstjórnin vera einhvers konar Jónasar-költ. Allt sem maðurinn sagði var svo fyndið og beitt og spot on. Ég skildi þetta ekki.
Vilji maður taka Jónas á þetta og afgreiða bókina í þremur setningum gætu þær verið svona: Jónas fæddist með silfurskeið í munni og hefur líklega vanist því að fólki finnist hann æðislegur. Menn sem umkringja sig aðdáendum verða fyrr eða síðar bilaðir. Spyrjið bara Brian Wilson.
Nú.
Sú ömurlega umræða sem fram fer í netheimum – svona almennt og yfirleitt – er mönnum eins og Jónasi að kenna. Þeir hafa komið þeirri hugsun fyrir í fólki að texti eigi að vera stuttur og hnitmiðaður. Eins og bókin hans sem er vissulega stutt og hnitmiðuð. Það þarf hinsvegar að koma fram líka að bókin er fyrst og fremst hnitmiðað innihaldsleysi. Eins og bloggið. Eins og Facebook. Eins og Fréttablaðið.
Það litla sem ég hef lesið úr skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis er hinsvegar skýrt, rökfast, hnitmiðað og LANGT og ÍTARLEGT. Yfir henni hvílir akademísk yfirvegun og það er svo gott – svo frískt – að lesa svona texta eftir allt sem á undan er gengið. Eftir öll bloggin, eftir öll illa skrifuðu kommentin, eftir allan Jónasinn. Maður fær hérumbil trú á íslenskt samfélag að nýju. Trú um að við getum kannski – þrátt fyrir allt – rifið okkur upp og farið að gera eitthvað uppbyggilegt og mannbætandi.
Fjölmiðlamenn mættu gera meira af því að ræða við menn eins og prófessor Vilhjálm Árnason því í einu hálftíma viðtali við slíkan mann er meiri dýpt og viska en í öllu sem Jónas Kristjánsson hefur nokkurn tímann sagt. Þá er eiginkona Jónasar, hún Kristín, ekkert mikið síðri en Vilhjálmur. Tölum líka við hana. Minna við manninn hennar.
[Athugasemdir: 2]
Við Rauðhausar klikkum ekki á að bjóða fólki lágmarks afþreyingu yfir páska.
Í boði er eftirfarandi:
Þrjú hlaðvörp um Eistnaflugshátíðina í Neskaupstað sem fram fór dagana níunda til tólfta júlí í fyrrasumar. Þar var JKÁ staddur með vini sínum Sigga Ó og saman gerðum við eitt og annað í fyrsta skiptið (til að forðast misskilning þá fórum við sumsé í moshpyttinn síðasta kvöldið). Þarna eru viðtöl við allskonar fólk, misjafnlega ölvað en allir í ólýsanlega góðu skapi. Upphaflega átti þetta að vera þáttur fyrir Rás 2 en þegar upp var staðið fannst JKÁ að þættirnir ættu betur heima á þessum vettvangi.
En sumsé. Þið finnið Eistnaaflugstrílógíuna hér.
Í öðru lagi verður boðið upp á bónusefni við þættina ”Fagurfræði dauðans” sem verða á dagskrá Rásar 2 í dag, morgun og annan í páskum. Þættirnir fjalla um trúverðugleika og dægurtónlist – hið ekta – og í þeim er m.a. rætt við félagsfræðinginn Gest Guðmundsson og þjóðfræðinginn Valdimar Hafstein. Eins og alltaf var aðeins hægt að nota brotabrot af þeirri visku sem þeir miðluðu en vegna þess hversu dásamlegt þetta svokallaða “internet” er hægt að setja viðtölin hingað inn í fullri lengd ykkur til gagns og gamans.
Viðtölin eru aðgengileg á hlaðvarpssíðunni.
[Athugasemdir: 0]