header image
laugardagur, 27. mars, 2010 [Athugasemdir:0]

Til er hópur fólks, aðallega kvenfólks, sem kallar sig miðla. Ég sé reyndar að uppá síðkastið hefur orðið breyting á og nú heita þeir sjáendur.Trúlega eitthvað fínna. Einn þessara sjáenda, Lára einhver Ólafsdóttir varð fræg að endemum í fyrra þegar hún spáði „stórum jarðskjálfta á Krýsuvík“ ekki bara einhverntíma á árinu, heldur „kl. 23:15 þann 27. Júlí „ Auðvitað varð enginn stór jarðskjálfti í Krýsuvík , hvorki kl. 23:15 né 15:23 þann dag eða það ár. Þá er komið að yfirstandandi eldgos. Hinni sjáandi Láru tekst að tengja þetta tvennt saman. Annars vegar atburð sem aldrei varð, JARÐSKJÁLFTANN í Krýsuvík og ELDGOSIÐ á Fimmvörðuhálsi. Hvernig má það vera? Jú, hún segir orðrétt: „En mér finnst mjög merkilegt að eldgosið á Fimmvörðuhálsi hafi byrjað klukkan 23:30, en ég sagði 23:15.“ LÁRA!!! Þú talaðir um jarðskjálfta, þetta er eldgos. Jarðskjálftinn átti að eiga sér stað í júlí í fyrra, fyrir átta mánuðum síðan og Krýsuvík er í liðlega 230 kílómetra fjarlægð frá Fimmvörðuhálsi. En ég skal viðurkenna að það skeikar bara kortéri hjá þér!
Ég spái því að það hlýni þegar nær dregur sumri. Ég veit reyndar ekki alveg klukkan hvað, túlega uppúr hádegi

Engin athugasemd

Engar athugasemdir

Skrifa athugasemd

*
Vinsamlegast skrifaðu orðið sem birtist hér að neðan í reitinn.

Anti-Spam Image

 

eXTReMe Tracker