Gaflari og Haukamaður að upplagi en vonandi orðinn Fáskrúðsfirðingur
Vefurinn timarit.is er endalaus uppspretta fróðleiks og skemmtunar. Ég var m.a. að skoða Þjóðviljann frá 7. sept. 1973. Þar var verið að fjalla um atvinnumál ofl. á Fáskrúðsfirði, togarakaup og aðra uppbyggingu. Undir lok greinarinnar kemur þessi kafli:
“Alls staðar getur malbikið komið sér fyrir og nú eru að hefjast miklar malbikunarframkvæmdir á Fáskrúðsfirði. Að visu má segja að aðeins 2 götur séu i þessum litla bæ, en hann samanstendur af 730 ibúum, og á nú að malbika aðra þeirra, Hafnargötuna. Óneitanlega finnst mörgum borgarbúanum, sem þarna kemur, það fráleitt að innleiða malbikið i þorp sem Búðir. Þeim finnst það spilla sveitaáhrifunum, eyðileggja friðsældina og setja of mikinn borgarblæ á þorpið.”
Mér varð á að skella uppúr við þennan lestur, því mér kom í hug grein sem ég skrifaði í Moggann 19. nóv. 2006. Þar var ég að setja ofaní við “borgarbúann” skáldið Sveinbjörn I. Baldvinsson vegna pistils sem hann skrifaði, þar sem fram komu nákvæmlega sömu hrokafullu sjónarmiðin. Skáldinu var ekki skemmt við skammir mínar. Greinina má lesa HÉR.
[Athugasemdir: 0]