Gaflari og Haukamaður að upplagi en vonandi orðinn Fáskrúðsfirðingur
Plottið gengið upp: Jónína Ben leitar nú stuðnings hjá almenningi við forsetaframboð Gunnars í Krossinum!!
Ha ha ha ha stólpípudrottningin að verða forsetafrú!!
Mikið hef ég verið framsýnn í félagsþátttöku minni í gegnum tíðina. Ég gekk úr þjóðkirkjunni á unglingsárum —allir vita hvernig hún og hennar prestar og æðstuprestar eru…. blessaðir. Ég vék mér undan því að ganga í Félag viðskipta- og hagfræðinga við útskrift úr HÍ. Það sama félag kaus Hreiðar Má viðskiptafræðing ársins 2005. Sá pési var handtekinn nú í hádeginu fyrir”afrek” sín á liðnum árum. Ég gekk í Hauka á barnsaldri, hef aldrei sagt mig úr félaginu…. það stefnir allt í að þeir verði Íslandsmeistarar í handbolta, þriðja árið í röð
[Athugasemdir: 0]
Ef Jón Gnarr ætlar sér að ná árangri í komandi kosningum ætti hann að forðast sjónvarpsviðtöl.
[Athugasemdir: 0]