header image
laugardagur, 27. mars, 2010

Til er hópur fólks, aðallega kvenfólks, sem kallar sig miðla. Ég sé reyndar að uppá síðkastið hefur orðið breyting á og nú heita þeir sjáendur.Trúlega eitthvað fínna. Einn þessara sjáenda, Lára einhver Ólafsdóttir varð fræg að endemum í fyrra þegar hún spáði „stórum jarðskjálfta á Krýsuvík“ ekki bara einhverntíma á árinu, heldur „kl. 23:15 þann 27. Júlí „ Auðvitað varð enginn stór jarðskjálfti í Krýsuvík , hvorki kl. 23:15 né 15:23 þann dag eða það ár. Þá er komið að yfirstandandi eldgos. Hinni sjáandi Láru tekst að tengja þetta tvennt saman. Annars vegar atburð sem aldrei varð, JARÐSKJÁLFTANN í Krýsuvík og ELDGOSIÐ á Fimmvörðuhálsi. Hvernig má það vera? Jú, hún segir orðrétt: „En mér finnst mjög merkilegt að eldgosið á Fimmvörðuhálsi hafi byrjað klukkan 23:30, en ég sagði 23:15.“ LÁRA!!! Þú talaðir um jarðskjálfta, þetta er eldgos. Jarðskjálftinn átti að eiga sér stað í júlí í fyrra, fyrir átta mánuðum síðan og Krýsuvík er í liðlega 230 kílómetra fjarlægð frá Fimmvörðuhálsi. En ég skal viðurkenna að það skeikar bara kortéri hjá þér!
Ég spái því að það hlýni þegar nær dregur sumri. Ég veit reyndar ekki alveg klukkan hvað, túlega uppúr hádegi

[Athugasemdir: 0]
föstudagur, 26. mars, 2010

Úúúú….. frétt á DV:
“Sölvi fer með í brúðkaupsferð Jónínu og Gunnars”
Heilagur trekant í jesú nafni?

[Athugasemdir: 0]
þriðjudagur, 23. mars, 2010

Þetta las ég í Mogga:
“FJÖGUR norsk skip hafa undanfarið landað hrognaloðnu úr Barentshafi á Fáskrúðsfirði og það fimmta er væntanlegt á miðvikudag. Í nógu hefur verið að snúast hjá starfsfólki Loðnuvinnslunnar við að skera loðnu, hreinsa og frysta hrogn og var skólafólk m.a. við hrognavinnslu um helgina.”
Jákvæð frétt í alla staði. En er það virkilega orðið þannig að á Mogga sé enginn blaðamaður eftir sem hefur grips vit á sjávarútvegi. Það hefur því verið í nógu að snúast hjá starfsfólki Loðnuvinnslunnar við “að skera loðnu” !! Í fréttinni kemur fram að norsku skipin komi með u.þ.b. 6.000 tonn að landi. Gróft reiknað eru það 360 milljón loðnur sem þarf að “skera”. Vonandi lýkur því fyrir næstu loðnuvertíð.
Það er huggun harmi gegn að brostinn er á flótti meðal áskrifenda Mogga og því færri sem þurfa að lesa svona dellu.

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 18. mars, 2010

Hversu upptekinn getur þessi fámenni hópur sem vinnur við fjölmiðla á Íslandi, verið af sjálfum sér? Spjallþættir í útvarpi og sjónvarpi, stórviðtöl í blöðum og tímaritum byggjast á því að þar talar einn fjölmiðlamaður við annan. Nýjasta dæmið er “frétt” á dv.is þar sem “fréttamaður” dv skrifar “frétt” um það að Björn Þorlálksson (hver svo sem sá annars ágæti maður nú er) hafði gert do-do fyrir ca. níu mánuðum og sé að verða pabbi.
Hverjum er ekki dru… sama Ég fór á kósettið kl. 18:30 og sturtaði niður nokkru seinna. Er það frétt? Nei… en ef ég hefði séð um Kastljósið…. ekki spurning.

[Athugasemdir: 0]

 

eXTReMe Tracker