Gaflari og Haukamaður að upplagi en vonandi orðinn Fáskrúðsfirðingur
Á útvarpsstöðinni Sögu er margt skrafað og þar er mörgum manninum oft mikið niðri fyrir. Þar eru menn sem “.. róa í sama knérunn..” um leið og þeir “.. skara að sér askinum..” Einn talaði um fátækt og sá að: “.. þeir eiga varla á milli hnífs og skeiðar..”
Ég kvíði því sem framundan er, ef þetta reynist rétt framtíðarsýn hjá Kolfinnu Baldvinsdóttur; “… við getum ekki litið uppúr hafragrautnum, sem verður það eina sem við höfum í okkur og á.”
[Athugasemdir: 0]
Jæja, þá er spilahöllin fallin og öll 52 spilin liggja eins og hráviði um allt stofugólfið en jókerarnir finnast ekki.
“Séð & heyrt” liðið sat á hækjum sér og skemmt sér við að raða upp spilaborginni við kjör aðstæður sem íhaldið og framsókn skópu þeim, góða lýsingu og logn. Eins og venjulega fór nánast öll þjóðin í kollhnís af fögnuði þegar spilahöllin var risin og á hana rann þetta venjulega æði, sem alltaf brestur á þegar vel gengur, kaupæði. Húsbílar og húsgögn, hjólhýsi og fellihýsi, einbýlishús og sumarbústaðir, utanlandsferðir, jeppar, 1000 lítra ísskápar, sólpallahitarar, markísur og flatskjáir.
Einhver gleymdi að loka glugga, því gola frá USA varð til þess að eitt spilið í höllin gekk til og þá var ballið búið.
Þetta sá ég allt í gamla 26 tommu Grundig sjónvarpstækinu mínu.
[Athugasemdir: 0]
“TORTRYGGNI Í NOREGI VARÐANDI RÚSSALÁN”
Þessi fyrirsögn blasti við í dag. Ég fór að velta því fyrir mér hvort Norðmenn væru allt í einu farnir að bera hag okkar fyrir brjósti. Það hefur nú ekki verið vaninn. Þeir hafa fram að þessu verið hinir mestu tuddar að samskiptum landanna og verið okkur til mikilla leiðinda á alþjóðamörkuðum á liðnum árum.
Ég las áfram viðtalið við Rögnvald Hannesson prófessor hjá Norska Verslunarskólanum í Osló.
„Nú eiga að fara fram viðræður um að rússneska ríkið láni Íslendingum. Það má hugsa sér að það séu hagsmunir norskra stjórnvalda að koma í veg fyrir að rússnesk stjórnvöld bjargi íslenskum bönkum,“ segir Rögnvaldur.
Já, einmitt!
Hjúkk, ég hélt að ég þyrfti að fara að endurskoða álit mitt á Nossurunum.
[Athugasemdir: 0]
Hversu súrt getur þetta orðið!
Rússar ætla að lána Geir forsætis og Davíð seðlabanka stórfé til að slökkva í brunarústum einkavæddu bankana.
Rússar!!
Geir og Davíð!!
Ha, ha, ha, ha, ……..
[Athugasemdir: 0]
Jæja, þá eru menn loksin búnir að finna lyktina.
Forsætis setur neyðarlög þar sem allt er farið til fjandans.
Allir voða hissa?
Hvað halda menn að gerist þegar krökkum er hent, án eftirlits, inní yfirfulla sælgætisbúð? Það endar bara á einn veg, það gengur uppúr og niðurúr krakkaskaranum. Þau hætta ekki fyrr.
Svo kemur tannpínan.
[Athugasemdir: 0]
Oft hef ég furðað mig á hugarheimi “listamanna í 101″ og skorti þeirra á tengslum og skilningi á lífi og aðstæðum þess fólks sem býr fjarri þessum nafla alheimsins, 101 Reykjavík. Í gær rakst ég á viðtal við myndlistakonuna Guðlaugu Dröfn Gunnarsdóttur, sem hefur lokið MFA námi frá listaháskólanum Villa Arson í Nice í Frakklandi. Hefur listakonan góða búið erlendis í tíu ár, en er greinilega flutt til Íslands og hefur sest að í hjarta Reykjavíkur. Sem sagt listamaður í 101 Reykjavík. Í samtalinu kemur fram að hún notast við gamla RAFHA-eldavél. Svo segir: “”Ég elda mikið og hef gaman af en mér skilst þó að eldavélin éti rafmagn” segir Guðlaug en vinur hennar sýndi henni það svart á hvítu á dögunum. “Hann sagði mér að fylgjast með rafmagnsmælinum um leið og hann kveikti á eldavélinni en hann byrjaði samstundis að snúast miklu hraðar,” segir Guðlaug…..”
Þetta er að sjálfsögðu alveg stórmerkilegt; þú kveikir á einu rafmagnsfrekasta tæki heimilisins og rafmagnsmælirinn snýst hraðar!! Þetta er alveg svakalegt! Eldavélin notar rafmagn! Þrátt fyrir þetta ætlar hún ekki að endurnýja eldavélina þar sem hún á hvorki flatskjá né bíl. Hún ætlar sér því að greiða fyrir rafmagnið með því fé sem hún sparaði við það að neita sér um skjáinn og bílinn. Því ætlar hún að sleppa því að fá sér nýja eldavél sem notar ekkert rafmagn.
Mig skal ekki undra að listamenn úr 101 Reykjavík séu margir hverjir mótfallnir byggingu raforkuvera hér á landi ef þetta er viðtekin skoðun meðal þeirra.
[Athugasemdir: 0]
Ég rakst á “frétt” í Fréttablaðinu í morgun um að séra Pálmi Matthíasson hefði farið holu í höggi á Öndverðarnesvelli þann 16. júlí sl. Já, fyrir rúmum einum og hálfum mánuði síðan! Mikið er Pálmi hógvær maður að segja ekki frá þessu fyrr en nú. En er þetta virkilega frétt? Það eina sem í raun er fréttnæmt við þetta, er að Pálmi svindlaði. Golf er einstaklingsleikur og aðstoð annarra er takmörkuð við að bera tækin og tólin sem til spilamennskunnar þarf, á milli hola. Fram kemur í viðtalinu við Pálma að hann var með “aðstoðarmann” með sér í liði, sjálfan guð almáttugan. Ef guð er almáttugur, eins og Pálmi segir, þá er nú lítill vandi fyrir þá félagana að koma einni lítilli golfkúlu ofaní holu í einu höggi.
Svo hélt ég að atburður af þessu tagi teldist ekki fréttnæmur lengur, því fyrir skömmu birtist frétt með þessari fyrirsögn: “Blindur blökkumaður fer holu í höggi.” Ef blindur maður, óháð hörundlit, getur farið holu í höggi þá ætti það varla að teljast fréttnæmt þó Pálmi prestur og guð almáttugur, í sameiningu, leiki þann leik eftir.
[Athugasemdir: 0]
Jæja, þá er framsóknarmaddaman lögst á bakið eina ferðina enn og fnykinn leggur um sviðið.
Á hátíðisdögum ræða forkólfar stjórnmálaflokkanna það með trega og tárum hversu slæmt það sé að virðing fyrir stjórnmálum og stjórnmálamönnum fari þverrandi. Ef þú byrjar að saga af þér löppina og heldur því nógu lengi áfram, þá endar með því að hún dettur af.
Ætlar karlinn Ólafur með hálskeðjuna að snúa sér að heimilislækningum aftur? Það er gagn að íslendingar eru almennt heilsuhraustir.
Þetta leikhús fáránleikans sem rekið hefur verið í Óráð-húsinu í Reykjavík, þætti eflaust sérkennileg uppfærsla í einhverju fámennu byggðarlagi úti á landi.
[Athugasemdir: 0]
Nokkur umræða hefur orðið um aðbúnað fanga í nýju fangelsi á Akureyri og hefur ýmsum þótt nóg um hversu langt er gengið í að gera aðbúnað fanga sem bestan. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að frelsissviptingin ein og sér ætti að fara langt með að duga sem refsing. Yfirvöld eiga ekki að auka á refsinguna með slökum aðbúnaði fanga. Maðalvegurinn er trúlega vandrataður í þessu tilfelli, eins og ævinlega.
Fram hefur komið að þeir sem vistast í þessu nýja fangelsi séu svokallaðir “fyrirmyndarfangar”. Það er einmitt það! Hvernig í ósköpunum getur fangi verið öðrum til fyrirmyndar, á meðan hann situr inni og afplánar refsingu fyrir glæpsamlegt athæfi.
Hverjir eiga að taka þessa fanga sér til fyrirmyndar?
Börn og unglingar? Foreldrar við uppeldi barna sinna?
Ég held ekki.
[Athugasemdir: 0]
Ég hef alltaf talið Ítali með skemmtilegri þjóðum. Ég hef heimsótt þá sem búa á norðurhlutanum og einnig hef ég dvalið á Sikiley. Ítalska unglinga umgekkst ég í nokkrar vikur í sálugri Tékkóslóvakíu á unglingsárum. Enn eru þeir að skemmta manni. Ég las skondna frétt þar sem fram kom að Ítalska ríkið hefur verið dæmt til að greiða samkynhneigðum manni, ígildi 12 milljóna króna í miskabætur vegna mismununar. Ástæðan: Jú, af því að hann er hommi þurfti hann að taka bílprófið að nýju, ella félli það úr gildi. Hann tók prófið, stóðst það og fékk ökuréttindin endurnýjuð, en einugis til eins ár í stað tíu. Já, þeir eru skratti skemmtilegir þarna á Ítalíu að sjá þetta augljósa samhengi: Hommi = skert ökuréttindi.
Mér er reyndar hulin ráðgáta hvers vegna manngarmurinn var að taka það sérstaklega fram við við læknisskoðun, þegar hann skráði sig í herinn, að hann væri hommi. Enn síður skil ég af hverju viðkomandi læknir var að láta samgönguráðuneytið vita af kynhneigð mannsins! Af hverju ekki Rafmagnseftirlitið?
Ég legg til að allir þeir sem eru með skotvopnaleyfi og eru rauðhærðir og örvhentir, verði hér eftir kallaðir í árlegt próf.
[Athugasemdir: 0]
Í fréttum Sjónvarpsins í kvöld var viðtal við Albert Eiríksson, safnstjóra Fransmanna á Íslandi, sem staðsett er á Fáskrúðsfirði. Þar vakti Albert máls á því þjóðþrifamáli að gera upp Franska spítalannn sem staðið hefur við Hafnarnes og grotnað niður undanfarna áratugi. Vonandi tekst sem allra fyrst að útvega fé til verksins og hefja veg þessa merka húss til fyrri virðingar hér á Fáskrúðsfirði. En í lok viðtalsins setti að mér hroll því Albert hafði orð á því að það væri í raun merkilegt að ekki væri enn búið að kveikja í húsinu! Einmitt!! Endilega benda á það í sjónvarpi allra landsmanna að enn sé ekki búið að kveikja í því!
Gæti verið að innan skamms hætti menn að huga að fjármögnun endurbyggingar Franska spítalans vegna þess að hann verði horfinn uppí loftið?
[Athugasemdir: 0]
Getur það verið að nafni minn, presturinn í tímabundnu leyfi, Björnsson sem sætir kæru fyrir kynferðisbrot gegn amk. tveimur unglingsstúlkum hafi setið undir setningarræðu biskups við prestastefnu í Dómkirkjunni, þar sem biskupinn sagði m.a.: “Kirkjan vill og á að vera bandamaður barnsins, talsmaður barnsins og fjölskyldunnar, barnafjölskyldunnar umfram allt.” og “Ofbeldi gegn börnum er illt og óguðlegt athæfi, og hrópar upp í himininn. Vanræksla er ofbeldi, sem veldur mikilli vanlíðan barna og brýst út í andfélagslegri hegðun, skemmdafýsn og árásagirni. og “. ? .. eða var biskupinn utan þessa heims þegar kærumálið kom upp?
Uppfærsla: Var að lesa DV (gamalt blað) og þar kom í ljós að fjórar stúlkur hafa lagt fram kærur á hendur síra Gunnari en hann “telur að um misskilning sé að ræða.”
[Athugasemdir: 0]
Mikið hefur þessi umræða um dauða ísbjörninn fallið í fyrirséð far. “101-náttúru-lista-vistvæna-græna-lífræna-á móti flugvellinum-á móti álverum-á móti togveiðum-á móti hvalveiðum-allt bannað nema það sem sérstaklega er leyft=lið mætti í hin hefðbundnu viðtöl og romsaði uppúr sér fyrirséðum ræðum um að aðvitað hefði bara átt að svæfa hann og skila honum á heimaslóðir. Þrátt fyrir að ljóst væri að ekki voru til tæki né tól til að svæfa hann, ekki til búnaður til að geyma björninn og halda honum í skefjum eftir svæfingu. Ekkert lá fyrir hvernig átti að flytja hann mörg hundruð mílur norður með ströndum Grænlands. Til að kóróna vitleysuna er nokkuð ljóst að Danir hefðu alfarið lagst gegn því að bangsi litli hefði verið fluttur á heimaslóðir vegna sjúkdómavarna. Hann var jú búinn að ramba um í íslenskri náttúru. Hún er hvorki sótthreinsuð né gerilsneydd eins og ætla mætti af málflutningi ofangreinds hóps.
Það var tilviljun að þokan náði ekki niður að sjávarmáli þegar bangsi var á ferðinni. Ætli þessi hópur hefði eitthvað lagt til málanna ef bangsinn hefði ranglað í þokunni niður í byggð og rifið í sig eins og einn grunnskólakrakka eða bústna heimasætu á einhverjum sveitabænum? Nei auðvitað átti að skjóta hann. Það eru eðlileg, sjálfsögð og viðurkennd viðbrögð við stóru og hættulegu villidýri í mannabyggð.
Hluti af hópnum, Björk og Sigur Rós ætla að halda tónleika “til stuðnings náttúrunni” og af gæsku sinni “bjóða” þau almenningi, endurgjaldslaust. En eins og alltaf, þá er ekkert ókeypis. Reykjavíkurborg ætlar að styrkja framtakið um fjórar milljónir og ýmis fyrirtæki um óþekktar upphæðir. Þetta segir mér að þetta annars ágæta tónlistarfókl skrifar væntanlega út reikninga að afloknum tónleikum, hvað sem stuðningi við náttúruna líður.
Ekki kæmi mér á óvart að einhver Björkin eða Rósin úttalaði sig með ekka í koki og tár á hvarmi um hið viðurstyggilega ísbjarnardráp.
Það er lítið um óvæntar heimsóknir ísbjarna í 101.
[Athugasemdir: 1]
Nú er komin endanleg staðfesting á sumrinu: Búið að tappa bensíninu af snjósleðanum og fylla með því takninn á garðsláttuvélinni, tankinn á utanborðsmótornum og restina fékk sonurinn á mótorhjólið.
[Athugasemdir: 0]
Hvað eru menn að væla yfir háu bensínverði? Vitiði hvað líterinn af kveikjarabensíni kostar? Nei, mig grunaði það! Hann kostar 5.600,- kr. fimm þúsund og sex hundruð krónur!! Í Lísusjoppu. Það er gagn að maður ekur ekki um á Zippo!
[Athugasemdir: 0]
Jæja, auðvitað kom á daginn að Mogga-”fréttin” í gær var enn eitt déskotans upphlaups-móðursýkis-ruglið sem enginn fótur var fyrir.
Nú hljóðar pistill dagsins svo, í Mogga:
“Sílamávurinn á ekkert í álftina. Álftin dræpi sílamávinn eins og að drekka vatn,“ segir fuglafræðingurinn Jóhann Óli Hilmarsson varðandi fréttir þess efnis að mávar hafi gert árás á álftapar á Bakkatjörn og étið egg þeirra.
Fréttin vakti mikla athygli í gær, en margir fuglafræðingar hafa hins vegar átt erfitt með að trúa þessum fréttum - fannst þær harla ólíklegar. Skýringin sé einföld - mávar eigi ekki roð í álftir líkt og Jóhann Óli bendir á.
Nánari athugun fuglafræðinga á aðstæðum á Bakkatjörn í gærkvöldi staðfesti að grunur þeirra reyndist á rökum reistur. Álftin sást liggja á tveimur eggjum og því er útlit fyrir álftarungar muni komast á legg á Seltjarnarnesinu.
Jóhann Óli segir ljóst að einhver misskilningur sé á ferðinni hjá þeim sem telja sig hafa séð máva ráðast á álftir.”
Lúkasinn lifi!!
[Athugasemdir: 0]
Ég er í algeru sjokki. Í fyrradag varð ég vitni að því, þegar ég gerði að stórum steinbít að hann hafði étið krabba, ekki bara eitt stykki heldur marga, já örugglega ein fimmtán stykki! Ætli ég verði ekki að hafa samband við fjölmiðla og sjá til þess að þjóðin frétti að þessum hryllingi. Hafiði heyrt annað eins?
Já, ég hef reyndar lesið annað eins í Mogga. Ekki eins, að vísu, heldur enn vitlausara. Fyrirsögnin: “Harmleikur á Bakkatjörn” fangaði þar athygli mína. Ég sá fyrir mér að barn hefði fallið í tjörnina og drukknað eða eitthvað á þeim nótum. Eftir formanni umhverfissviðs Seltjarnarness var haft: “Það varð harmleikur í gær.” Hver var nú “harmleikurinn”? Jú, mávar fengu sér álftaregg að éta! Og hvað með það? Egg eru fæða máva. Ekki þverskorin, soðin ýsa.
Hversu fjarri er þetta fólk orðið náttúrunni og gangi hennar, þegar það kallast harmleikur á höfuðborgarsvæðinu, þegar mávur étur egg og telst þar að auki vera fréttaefni?
Reyndar hafa fuglafræðingar gert athugasemdir við fréttina og telja að álftir séu fullfærar um að verjast ágangi máva.
Heyri ég nokkuð kallað: Lúkas, hvar ertu?
[Athugasemdir: 1]
Einn af kostum þess að vera á grásleppuveiðum er meðaflinn. Nú er búið að elda og borða steinbít, þorsk, skarkola, sandhverfu, rauðmaga……
…. og hnísu og …..
svo kemur forrétturinn ……
… og forréttur númer tvö.
Nú, ef það syndir ekki, þá er bara að munda haglarann….
.. og hávellur í restina.
Signa grásleppan er alveg að verða tilbúin. Hennar bíður grillið.
[Athugasemdir: 0]
Norskur línuveiðari var tekinn við ólöglegar veiðar á friðuðu svæði út af suðausturlandi í fyrradag. Alvarlegt brot? Já! Sektin: 500.000,- kr. Fimm hudruð þúsund krónur þarf útgerðin að greiða fyrir þetta brot! Auk þess var afli og veiðarfæri að sjálfsögðu gerð upptæk eins og venja er. Man enginn hvernig Norðmenn tóku á villum í skráningu afla hjá íslenskum skipum í landhelgi þeirra eða hvernig þeir komu fram við tilraunir til að lyfta Guðrúnu Gísladóttur KE af hafsbotni?
Hvurslags andskotans undirlægjuháttur er þetta alltaf gagnvart þessum “frændum” okkar?
Það vantar a.m.k. eitt núll í þessa upphæð.
[Athugasemdir: 0]
Síðastliðinn laugardagsmorgun lögðum við nokkrir félagar land undir fót og héldum út norðurströnd Reyðarfjarðar með snjósleðana okkar í eftirdragi í þvílíkri brakandi blíðu og settum stefnuna á Vöðlavík, sem er norðan Reyðarfjarðar.
Myndin er tekin yst í Vöðlavík, að norðanverðu.
Eftir að hafa farið allt til sjávar í Vöðlavíkinni var haldið uppúr henni og til norðurs til Viðfjarðar og þaðan var enn haldið í norður og kíkt niður í Hellisfjörð. Í bakaleiðinni var ákveðið að halda austur fjallgarðinn milli Vöðlavíkur og Reyðarfjarðar.
Þar blasti eyjan Skrúðurinn og Vattarnesið við.
Þrátt fyrir sólbruna og harðsperrur var farið á fætur kl. 4:30 til móts við grásleppuna og uppúr hádegi vorum við búnir að landa þremur tunnum af hrognum.
Þetta verður ekki betra.
[Athugasemdir: 0]