header image
föstudagur, 13. febrúar, 2009

Forstjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands lét hafa eftir sér fullyrðingu í rúv í hádeginu að “þjónusta í læknishéraðinu (Fjarðabyggð) myndi ekki skerðast”. Hvernig í ósköpunum gat maðurinn fullyrt það? Tilefnið var að læknirinn á Eskifirði hefur verið leystur frá störfum vegna hugsanlegs fjármálamisferlis, Læknirninn okkar hér á Fásk. er í veikindafríi frá því fyrir áramót, sá sem er ráðinn hér í ár er í vikufríi (fór í gær) þá er aðeins einn eftir, læknirinn á Reyðarfirði og hann hefur vaktsímann líka. Hálfur læknir er í láni af Héraði, eins og það var orðað í dag. Þetta hlýtur Stefán Þórarinsson að vita manna best, annars er hann ekki starfi sínu vaxinn eða hvað?

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 9. febrúar, 2009

Af hverju:
Er saklaust fólk að brenna til bana í Ástralíu?
Er verið að murka lífið úr fólki í Palestínu?
Er Davíð að þrjóskast við í Seðlabankanum?
Er Sigmundur Ernir að bjóða sig fram í NA-kjördæmi?
Er kreppan sem útrásarvíkingarnir bjuggu til að bitna á almenningi?
Er verið að halda áfram með Tónlistarhúsið þegar flytja þarf gamalmenni hreppaflutningum og fjármagn til lyfjakaupa er skorið niður til sjúkrastofnanna?
Erum við Íslendingar enn veruleikafirrt?

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 22. janúar, 2009

Ég endurtek: Ég trúi ekki eigin eyrum. Klukkan er 17:53 fimmtudaginn 22.janúar og ég er að hlusta á svæðisútvarpið á Austurlandi -og hvað er ég að hlusta á? Og búin að heyra út undan mér í margar mínútur? Jú, ég er að hlusta á Ásgrím Inga rekja garnirnar úr tveimur eðal-framsóknarmönnum ( sem ég man nú ekki hvað heita einu sinni) um það hvernig þeir “plottuðu” það að Sigmundur er nú orðinn formaður Framsóknarflokksins. Og hverjum er ekki “fokkings”sama? Er ekki allt í lagi heima hjá fréttamanninum? Er ekkert fréttnæmara en þetta að gerast í fjórðungnum? Það er alla vega nóg að gerast í þjóðmálum, hafi það farið framhjá þeim á rúv-aust. -hefði nú kannski verið hægt að leggja eitthvað út af því?
Hefur aldrei hvarflað að mér, fyrr en nú, hvort leggja eigi svæðisútvörpin niður?
Svei mér þá!
Ég er ekki viss!

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 21. janúar, 2009

Gott að sjá það að þjóðin lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Hún hefur meira úthald en embættismenn óraði fyrir.
Áfram bara!
Ekki láta brjóta á okkur!
-þó að fréttamenn fái hörð brauð í hausinn!
-og “mamma fari kannski á límingunum”
Það verður bara að hafa það!

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 12. janúar, 2009

Loksins erum við gömlu “Búðstrendingar” að ranka við okkur. Farnir að mótmæla yfirgangi “stór-Fjarðabyggðar-svæðisins”. Eða ætti ég frekar að segja; þeim þarna í 101, Fjarðabyggð Við eigum okkur meira að segja draum um lítil íbúasamtök.
Koma svo!!!

[Athugasemdir: 0]
föstudagur, 2. janúar, 2009

Búin að eiga friðsæl og indæl jól í faðmi fjölskyldunnar. Gerast vart betri. Hefði reyndar viljað hafa enn fleiri ættingja hér fyrir austan -en ekki er á allt kosið.

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 24. desember, 2008

img_0562

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 24. desember, 2008

3rdplace

Fyrir þá sem ennþá hafa snjó um jólin er upplagt að dunda sér við að móta eitthvað skemmtilegt. Góða skemmtun!

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 24. desember, 2008

Fyrir þá sem skyldur villast hér inn!
Gleðileg jól og hafið það sem allra best um hátíðirna!

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 17. nóvember, 2008

Keypti árvisst kökublað Gestgjafans -en eins og sannur Íslendingur keypti ég blaðið áður en ég skoðaði það eða las almennilega utan á það. Sé nú að stendur utan á blaðinu “gömlu góðu -terturnar og smákökurnar”.    Það er hárrétt. Blaðið er uppfullt af gömlum uppskriftum sem flestar húsmæður eiga nóg af. Fátt óvænt- og fyllir mann öryggistilfinningu? Ég sé t.d. uppskrift af Konungsætt -sama uppskrift og Þóra Halldóra, fyrrverandi góðnágranni minn til margra ára, gaf fyrir svona þremur árum  og ekki mörgum árum fyrr  gaf “Bakarinn á hjólinu”- eiginmaður Bjargar Long- hana útfærða sem burstabæ.

Sparið í kreppunni og sleppið því að kaupa kökublaðið í ár- af litlu að missa!

[Athugasemdir: 0]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker