raudhausar.com/gudfinna
Keypti árvisst kökublað Gestgjafans -en eins og sannur Íslendingur keypti ég blaðið áður en ég skoðaði það eða las almennilega utan á það. Sé nú að stendur utan á blaðinu “gömlu góðu -terturnar og smákökurnar”. Það er hárrétt. Blaðið er uppfullt af gömlum uppskriftum sem flestar húsmæður eiga nóg af. Fátt óvænt- og fyllir mann öryggistilfinningu? Ég sé t.d. uppskrift af Konungsætt -sama uppskrift og Þóra Halldóra, fyrrverandi góðnágranni minn til margra ára, gaf fyrir svona þremur árum og ekki mörgum árum fyrr gaf “Bakarinn á hjólinu”- eiginmaður Bjargar Long- hana útfærða sem burstabæ.
Sparið í kreppunni og sleppið því að kaupa kökublaðið í ár- af litlu að missa!
[Athugasemdir: 0]
Þessa dagana krefst fólk afsagna. Ekki er það undarlegt í ljósi ástandsins.
Frábær útifundur á Austurvelli í gær undir stjórn Harðar Torfa! Áfram bara gott fólk!
Ekki eru samt allir sem geta skilið á milli, í svona ástandi. Það hefur glumið í fjölmiðlum undanfarna daga að Bjarni Harðarson sé eini maðurinn sem sagt hafi af sér. Hann var kynntur sem slíkur hjá Sigmundi Erni í kvöld. Sagði hann ekki af sér vegna þess að upp um hann komst vegna baktjaldamakks, sem beindist að samflokksmönnum hans, sem misheppnaðist hjá honum?
Á þessi afsögn nokkuð skylt við kreppuna? Einhvern veginn fæ ég ekki séð það!
[Athugasemdir: 0]
Auðvitað vil ég jafnrétti. En ég vil ekki að við, konur, nýtum okkur kreppuna til að troða okkur að -hvar sem er bara af því að karlar eru búnir að “skíta á sig” í hinum ýmsu stöðum í þjóðfélaginu. Nú eru tvær konur orðnar bankastjórar. Ekki lofar það góðu, verð ég að segja. Önnur getur ekki gefið upp þau laun sem hún þiggur og hin virðist ekki vera alsaklaus af þátttöku í sukkinu. - Þetta er nú ekki til að bæta ímynd kvenna í lykilstöðum, eða hvað?
Svo koma kynsystur okkar og fara með alla gömlu frasana m.a. að konur séu svo hagsýnar, hugsi svo langt fram í tímann og hafi engu að leyna. Ekki alveg heppilegt á þessum tímapunkti er það?
Konur valda öllum stöðum þjóðfélagsins og eiga að veljast eftir eigin verðleikum -þær eru hvorki betri eða verri en karlmenn. Og engan veginn einsleitur hópur -það hélt ég að öllum konum væri ljóst!
[Athugasemdir: 0]
Eftir hættulega árás með sveðju er hegningartíminn helmingaður. Fanginn situr af sér, að stórum hluta- þann stutta tíma sem hann sat inni- á Kvíabryggju. Fer á reynslulausn og í efnafræði í háskólanum -og opnar fíkniefnaverksmiðju og er handtekinn. Forstjóri fangelsismálastofnunar kemur fram í Kastljósi og fullyrðir, skælbrosandi að ekkert sé óeðlilegt við málið. Ekki sé nein ástæða til að skoða málið! Ástæða: Það hefur verið unnið eftir lögunum.
Það hlýtur að vera eitthvað mikið að íslenskum lögum!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
[Athugasemdir: 0]
Norskur spekingur -greinilega fagmanneskja - mætti í viðtal hádegisfrétta, á ruv, í dag og kynnti að kenningar eru um að “óöyggi kvenna á meðgöngu” væri talinn einn þeirra þátta sem áhrif hefur á ofvikni barnanna sem þær ganga með. Hreint ekki svo fráleit kenning þegar maður heyrir hana útskýrða. En ekki nánar um það.
Það sem ég hnaut um var að konan sagði að “einn slæmur kennari getur eyðilagt allt”. Mikið til í því. En hvað með foreldra? Af hverju ræddi konan ekkert um þá ? Hjá þeim eru börnin mestan hluta sólahringsina, allar helgar, öll frí o.s.frv.
Í skóla er kennari ekki í neinni einangrun með barni. Iðulega kenna tveir kennarar hóp. Þeir eru undir eftirliti skólastjórnenda og vinna í teymum með öðrum kennurum og sérfræðingum.
Á heimilum er enginn eftirlitsaðili nema menn hafi hreinlega gerst brotlegir- og þarf mikið til, eins og allir vita að farið sé í slíkar aðgerðir.
Af hverju er ábyrgðin alltaf tekin af foreldrum?
Er allt í lagi að klína hverju sem er á skólann?
Hvert erum við komin?
[Athugasemdir: 0]
Það er ekki til nokkurt orð yfir íslensku krónuna þessa dagana nema kanski HAMFARIR!!!!!!!!!
[Athugasemdir: 0]
sá endann á frétt þar sem slökkviliðsmaður var spurður: “Hvernig gekk að slökkva eldinn?” (Það var auðséð á myndunum að það gekk ekki rassgat- allt brunnið til kaldra kola). Ég dreifbýlistúttan spurði manninn minn: “Hvar var þessi bruni?” Hann hugsaði sig um. “Á Bjálfastöðum,…held það sé fyrir norðan.”
Sá í seinni fréttunum að bærinn heitir Vestara-Fíflholt !
Ekki svo mikill nunur á skít eða drullu!
[Athugasemdir: 0]
Var yfirtaka Glitnis greiði við þjóðina? Það hlýtur að vera álitamál. Sérstaklega eftir viðtal Helga Seljans við Þorstein Má Baldvinsson. Hver er að segja satt? Þorsteinn ber ekki Davíð og Geir góða söguna. Ljótt er ef satt er! Mér sýnist honum verulega brugðið- það er nú oftast merki um að menn eru ekki að ljúga!
[Athugasemdir: 1]
Vinaviku var að ljúka í Öldutúnsskóla og var mikið gert úr því að nemendur hefðu gefið skólanum sínum faðmlag í dag. Það sem vakti athygli mína var að kennarinn sem tekið var viðtal við kunni ekki að beygja nafnorðið nemandi a.m.k. ekki í fleirtölu.
Sendið einhvern sem kann næst!
[Athugasemdir: 0]