raudhausar.com/esther
Mér finnst alveg stórkostlega fyndið að sjá oddvita Sjálfstæðisflokksins hérna í Fjarðabyggð halda því fram að fréttaflutningur af ráðningarferli bæjarstjóra í Fjarðabyggð hafi verið “mjög klaufalegur og óljós” [sjá Facebook-síðu flokksins]. Þvílík og önnur eins smjörklípa! Það voru ekki fréttamenn sem urðu uppvísir ófagmannlegum vinnubrögðum, seina- og vandræðagangi. Það var blessaður meirihlutinn sem var “mjög klaufalegur og óljós” og það væri betur ef oddvitinn gerði bara eins og hann lofaði nokkrum línum ofar, þ.e. tæki á sig “fulla ábyrgð hvað [ráðningarferlið] varðar sem formaður bæjarráðs”.
Ragna Óla 27júlí2010
Nákvæmlega! Fullkomlega glatað að halda því fram að enginn af umsækjendunum hefði haft nógu góða innsýn í fjármál Fjarðabyggðar.. halló!!
Ég er mjög ósátt við hvernig staðið var að þessu.. Ég heyrði í honum í útvarpinu og mér fannst þetta nr 1, 2 og 3 mjög klaufalega orðað hjá honum sjálfum.. hann gat allavega sleppt því að gefa upp svona kjaftæðis ástæðu..
Glatað!