header image
miðvikudagur, 30. júní, 2010 [Athugasemdir:2]

Þá erum við Jón búin að bóka og borga öll flug og þessi langþráða og margumtalaða ferð loksins að verða að veruleika. Það verður ekki aftur snúið úr þessu.


Skoða Hringferð Estherar og Jóns á stærra korti

Eins og sjá má verðurtöluvert span á okkur. Það verður t.d. spennandi að sjá hvernig við verðum í höfðinu eftir 11 klst langt flug og 8 tímabelti. Svo verðum við örugglega farin að þekkja flugvöllinn í Singapore ágætlega, a.m.k. eftir þriðju millilendinguna þar.

Ég hef lúmskan grun um að íslensk, vel kæst skata komi aldrei til með að bragðast jafnvel og á þorláksmessukvöld – þegar við komumst alla leið heim.

2 athugasemdir

  • Sissó 30júní2010

    Veiveivei!

  • fanney 4júlí2010

    úúúú, spennó spennó!

Skrifa athugasemd

*
Vinsamlegast sláðu inn staðfestingarorðið hér til hliðar.

 

eXTReMe Tracker