header image
laugardagur, 15. maí, 2010

Neyddist til að kaupa mér gallabuxur í dag. Neyddist. Dálítið átak fyrir kjóla- og pilsasjúka konu sem á aldrei meira en eitt gallabuxnapar í notkun. Í gærkvöldi eyðilagði ég það par svo ég varð að skreppa í búð. Bað um dökkar, stílhreinar gallabuxur sem væru ekki þannig í sniðinu að ég flaggaði nærbuxunum í hvert sinn sem ég settist niður.

“Já, þú vilt það sem við köllum konusnið,” sagði fimmtuga afgreiðslukonan.

Ok. Gott að vita hver mælikvarðinn er. Þegar maður hefur ekki áhuga á að sýna naríurnar sínar í tíma og ótíma er maður sumsé orðinn að konu.

[Athugasemdir: 4]
laugardagur, 15. maí, 2010

Mig dreymdi í vikunni undarlegan draum.

Ég var stödd á fundi með samstarfsfólki mínu hjá Fjarðalistanum. Sátum öll í þungum þönkum yfir skipulagi næstu vikna og höfðum af því áhyggjur að við kæmum ekki öllu fyrir á dagatalinu sem við vildum gera. Allir vildu vera alls staðar en það gekk að vonum brösulega. Þá vatt sér að okkur framsóknarmaður ofan að Héraði og sagðist vera með lausnina á þessu. Hann reyndi svo í góða stund að sannfæra okkur um það að sniðugast væri að láta prenta á stífan pappa mynd af okkur öllum í fullri stærð. Þessar pappamanneskjur myndum við síðan grípa með okkur á fundi og samkomur og þá gætu allir mætt á allt. Við þyrftum ekki að hafa af því neinar áhyggjur að nokkur myndi sjá í gegnum þetta. Honum tókst ekki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, að sannfæra okkur um þessa lausn og gekk út, svekktur á smámunaseminni í okkur.

Ráðning óskast.

[Athugasemdir: 0]

 

eXTReMe Tracker