raudhausar.com/esther
Þetta er það sem gerist þegar karlmaður fær að koma að því sem kona hefur á prjónunum. Þessir vettlingar eiga sumsé að vera svona. Ef einhver sér út notagildið, þá á sá hinn sami inni aðdáun mína.
[Athugasemdir: 4]
Það er komið sumar. Allavega í stofunni hjá okkur.
[Athugasemdir: 1]
Ég á stundum bágt með að skilja húmorinn í undirmeðvitund minni. Í morgun vaknaði ég með lag á heilanum sem ég hef ekki heyrt (samkvæmt netrannsóknum mínum) síðan árið 1995. Þá var ég 9 ára og auglýsingaáhuginn líklega í hámarki. Nú ómar “Já, já, já, já, já, já, já, já, ég er tilbúin(n)” í höfðinu á mér. Þvílíkur kveðskapur. Þvílíkt lag.
[Athugasemdir: 0]
Jæja. Hér er nú aldeilis allt steindautt. Ég hef oft vanrækt þessa síðu svo dögum skiptir en held að ég hljóti að slá einhver persónuleg met þessar vikurnar.
Þegar ég var búin að skila mastersritgerðinni og átti allt í einu frítíma varð ég eiginlega enn uppteknari en áður. Nú mátti ég allt í einu gera hvað sem mig langaði á kvöldin og um helgar. Þetta nýja frelsi varð til þess að ég fór að rifja upp gömul áhugamál og bæta nýjum við. Síðustu vikur hef ég fátt annað gert en að prjóna allar lausar stundir. Vettlingapörin og húfurnar hlaðast upp. Ég er byrjuð á peysu númer tvö. Þetta er hægt og rólega að verða að maníu. Laugardaginn fyrir páska varð ég að taka mér algjört frí frá prjónunum því þá var mig farið að verkja í fingurna eftir að hafa prjónað myrkranna á milli, bæði á skírdag og föstudaginn langa. Í dag er ég á skrifstofunni á Egilsstöðum og sé eiginlega eftir því að hafa ekki tekið prjónana með til að geta nýtt tímann í hádeginu. Ég meina, til hvers að borða hádegismat þegar maður getur prjónað?
Á sama tíma og prjónarnir hafa átt hug minn allan hef ég meðvitað reynt að hvíla mig á netinu. Það getur verið skelfilegur tímaþjófur og ég komst að því að stundum bara mjög gott að eiga svo gott sem ónothæfa nettengingu í nokkra daga.
Ég er síðan farin að stafa með góðu og áhugasömu fólki hjá Fjarðalistanum. Það er auðvitað margt bæði spennandi og óspennandi við pólitík. Mér finnst spennandi að vinna með fólki úr ýmsum áttum, sumum flokksbundnu og öðru alls ekki, konum og körlum, ungu fólki og öldungum og öllu þar á milli, með það eitt að markmiði að hafa góð áhrif á sitt nánasta samfélag. Það er nú ekkert flóknara en það. Það er vissulega óspennandi hversu vanþakklát og tímafrek svona vinna er en það er þó skömminni skárra að taka þátt en bölsótast við eldhúsborðið heima, finnst mér.
Jamm og jæja. Hér eru nokkrar svipmyndir frá síðustu dögum og vikum.
[Athugasemdir: 1]