header image
mánudagur, 31. ágúst, 2009

Ó, hvað ég elska Háskóla Íslands, þá skilvirku og gagnsæju stofnun.

Ég sendi póst á konuna sem sá um leyfisveitingu fyrir dagtali í fyrra. Hún er í fæðingarorlofi, samkvæmt sjálfvirku svari sem ég fékk frá henni í tölvupósti, en vísaði á aðra konu. Sú vísaði þessu frá sér til manns sem kannast ekkert við það hver sé um leyfin en sendir afrit af því svari sínu til beggja kvennanna um leið og hann svarar mér.

Sumsé; einni viku og sex tölvuskeytum síðar veit ég nákvæmlega ekkert meira.

[Athugasemdir: 3]
miðvikudagur, 26. ágúst, 2009

Seinnipartinn í dag heyrði ég bofs í hundspottinu sem var bundið úti og stökk út til að athuga hvað væri um að vera og sinna uppeldinu. Þegar ég kem út stendur þar lítill strákur og horfir óviss á hundinn.

Hann: Er þetta grimmur hundur?
Ég: Nei, alls ekki.
Hann: Bítur hann?
Ég: Nei, nei.
Hann: Ok. Hann gelti nefnilega á mig. Ég varð smá hræddur.
Ég: Já, hann er bara hálfsárs og svolítill kjáni ennþá. Hann heldur stundum að hann sé varðhundur.
Hann: Af hverju heldur hann það?
Ég: Jah…
Hann: Er hann kannski búinn að horfa á margar myndir með varðhundum í?
Ég: Já, ætli það ekki bara.

[Athugasemdir: 5]
þriðjudagur, 18. ágúst, 2009

Rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi fór ég niður á höfn til að losa mig við nokkur sundurskorin lík í ruslagám.

Agalega er alltaf gaman að veiða á sjóstöng.

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 17. ágúst, 2009

Við gengum á Sandfell í gær; ég, Jón og Þoka. Ég var alveg að gefast upp þegar síðasti kaflinn var eftir. Hélt ég myndi þurfa að leggjast á hliðina og rúlla mér niður, þvílík var þreytan í fótunum. Ég komst þó alla leið á lokum, þökk sé andlegum stuðningi frá hundi og manni. Nú sit ég stíf á skrifstofunni minni og finn hvernig harðsperrurnar krauma undir húðinni. Spennandi að sjá hvort ég geti risið hjálparlaust úr rekkju á morgun.

Sandfellsganga - ágúst 2009 (1)_b

Sandfellsganga - ágúst 2009 (6)_b

Sandfellsganga - ágúst 2009 (10)_b

Sandfellsganga - ágúst 2009 (25)_b

Sandfellsganga - ágúst 2009 (17)_b

Sandfellsganga - ágúst 2009 (38)_b

Sandfellsganga - ágúst 2009 (54)_b

Sandfellsganga - ágúst 2009 (60)_b

[Athugasemdir: 1]
þriðjudagur, 11. ágúst, 2009

Ef ég ætla að millifæra á einhvern sem ég hef ekki lagt inn síðustu 2 árin í netbanka Glitnis þá þarf ég að skrá mig inn með því að slá inn notandanafn, lykilorð og staðfestingarkóða af auðkennislykli. Þegar ég er svo búin að slá inn allar upplýsingar um þann sem ég ætla að leggja inn á þarf ég að slá inn einhverja tvo tilviljunarkennda stafi úr upplýsingunum um viðkomandi, slá aftur inn staðfestingarkóða af auðkennislykli og svo leyninúmer mitt á úttektarreikningi.

Hvaða rugl er þetta? Þarf í alvörunni alla þessa kóða til að millifæra 1.000 kr. á öruggan hátt?

[Athugasemdir: 2]
þriðjudagur, 11. ágúst, 2009

Hér hefur lítið verið skrifað síðustu vikur sökum upptöku undirritaðrar. Sumarfrí og aldrei meira að gera. Smá glefsur:

P7250457_b

Á leið í Pétanque á Frönskum dögum til að tapa fyrir gamlingja og barni, annað árið í röð.

.

P8020099_b

Þjóðhátíðargleði í Eyjum (þrátt fyrir alvarlegan svip,  bæði t.h. og t.v.)

.

P8080175_b_svarthvitt

Nýkomin úr brúðkaupsveislu.

.

P8090217_b

Legið í grasinu á Hólmanesi.

.

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 6. ágúst, 2009

Ég er farin að hafa áhyggjur af því að þessi síða hafi ekki verið uppfærð svo vikum skiptir.

[Athugasemdir: 0]

 

eXTReMe Tracker