header image
þriðjudagur, 30. júní, 2009

Vindstig eru miklu betri en metrar á sekúndu.

[Athugasemdir: 1]
þriðjudagur, 30. júní, 2009


[Athugasemdir: 0]
þriðjudagur, 30. júní, 2009

Oftast langar mig að sarga af mér aðra hendina með naglaþjöl frekar en að eiga samskipti við Tölvusmiðjuna, eina þjónustuaðilann hérna fyrir austan á því sviði. Það mætti stundum halda að tölvutæknin hafi borist hingað mörgum árum eftir að hún barst til Reykjavíkur. Ótrúlegustu hlutir verða að vandamálum og virðast gríðarlega flóknir og jafnvel óleysanlegir.

Um daginn var ekki hægt að komast inn á www.althingi.is. Því var fleygt hér á skrifstofunni að líklega starfaði einhver heitur búsáhaldabyltingamaður hjá Tölvusmiðjunni. Ég skal ekki segja um það en í besta falli var frekar fyndið að lokað væri á eina íslenska vefsíðu.

Í dag komst ég svo að því að það er ekki hægt að láta Outlook senda sjálfkrafa tölvupóst til baka um að ég sé fjarverandi næstu vikuna til þeirra sem senda mér póst.

Jæja. Ég get ekki skrifað meira í bili. Þá þarf ég að notað báðar hendur og handsnúna internettengingin okkar þolir það ekki.

[Athugasemdir: 5]
þriðjudagur, 30. júní, 2009

Það er ekki oft sem manni berast reikningar sem vekja gleði. Þessi gerði það nú.

reikningur

.

Ég kann að meta svona viðskiptahætti.

[Athugasemdir: 0]
sunnudagur, 28. júní, 2009

Ofurhressir sölumenn eru margfalt leiðinlegri en þeir allra fýldustu.

[Athugasemdir: 2]
föstudagur, 26. júní, 2009

Hvað er að ykkur fólki, að því er virðist, öllu nema mér?

Micheal Jackson er dáinn, já. Og hvað með það? Af hverju látið þið öll eins og þið hafið þekkt hann náið og persónulega? Af hverju eru þið öll í einhverju djúpu sorgarferli, spilandi lögin hans og póstandi myndböndunum á Facebook?

Af því að hann var svo merkilegur tónlistarmaður? Já, já. Það var hann en þá eru þið 20 árum of sein að syrgja ferilinn því hann hefur ekkert gert síðustu ár annað en að verða undarlegri, minna í tengslum við raunveruleikann og ólíkari sjálfum sér eins og hann var þegar þið elskuðuð tónlistina hans.

Munið þið eftir atriðinu úr uppistandinu hans Jóns Gnarr þar sem hann er tala um dönsku? Þar segir hann m.a. Hverjum er ekki drullusama þó einhver Dani drepist niðri í bæ? Einmitt spurningin sem ég væri að spyrja sjálfa mig ef Jackson hefði verið danskur og fengið hjartaáfall í miðbæ Reykjavíkur.

Snap out of it, people!

[Athugasemdir: 14]
fimmtudagur, 25. júní, 2009

Af hverju ætli enginn fjölmiðill hafi fjallað um að Arnold Schwarzenegger sé á Egilsstöðum?

Ef einhver frá Séð&Heyrt er að lesa þetta, þá er svarið já. Ég til í að selja myndina.

DSC00247

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 25. júní, 2009

Í morgun byrjaði ég að skipuleggja vinnumaraþon sumarsins: hringferð um landið og heimsóknir í 20 þjóðskóga á einni viku.

Í hádeginu fékk ég nett kvíðakast og sá að líklega er þetta aðeins of mikið til að ætla sér að gera á 7 dögum. En jæja. Það kemur í ljós hvort þetta takist. Eitt er víst, skemmtilegt verður það.

DSC00245

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 24. júní, 2009

Mig langar að segja eitthvað um þetta mál. Hausinn á mér fyllist hins vegar bara svo hratt af allskyns kaldhæðnishugsunum og aulahrollurinn skekur mig svo harkalega að ég kem mér bara ekki í það.

clausen

[Athugasemdir: 3]
miðvikudagur, 24. júní, 2009

P6170424_b

[Athugasemdir: 0]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker