header image
föstudagur, 30. janúar, 2009

Í dag er ég alveg búin að fá nóg.

Ég nenni ekki að lesa fleiri fréttir um nýja ríkisstjórn, um svekktan Geir, um kreppuna, stýrivextina eða Sigmund Davíð á pávertrippi. Ég meika ekki að pæla í því að Davíð sé enn í Seðlabankanum og líklega kosti margar milljónir að skipta út liðinu þar. Mér alveg sama hvort Jóhanna er kona eða ekki, lesbía eða ekki og hvort á að veiða nokkra hvali eða ekki.

Staðan er búin að vera svo glötuð undanfarna mánuði að það er eiginlega sama hvað gerist núna, þetta getur ekki versnað.

Mér hættir eflaust að vera sama mjög fljótlega, en í dag ætla ég bara að vinna skemmtilegu vinnuna mína, hlaupa svolítið, horfa á ruslsjónvarp og elda fylltar kjúklingabringur handa yndislega sambýlismanninum mínum.

[Athugasemdir: 1]
þriðjudagur, 27. janúar, 2009

Mér finnst alltaf jafn undarlegt að til sé vel upplýst og skarpt fólk sem trúir því í einfeldni sinni að háskólapólitík skipti í alvörunni einhverju máli, að einhver hlusti á ályktanir “flokkanna” innan veggja háskólans og jafnvel utan.

Grow up.

[Athugasemdir: 6]
mánudagur, 26. janúar, 2009

Í dag fékk ég síðbúna afmælisgjöf sem er höfð út á svölum af tillitssemi við sambýlismanninn. Hann er ekki eins hrifinn og ég af þessum væna hákarlsbita, ættuðum frá Djúpavogi.

[Athugasemdir: 0]
laugardagur, 24. janúar, 2009

Mikið ofboðslega má maður nú vera ánægður og þakklátur fyrir að Fljótsdalshérað ætli ekki að hækka fasteignagjöldin.

Talandi um ánægju og fasteignagjöld, þá er ég svakalega sátt við að borga nákvæmlega jafnhá fasteigngjöld af 69 fermetra blokkaríbúðinni sem við búum í hér á Egilsstöðum og við myndum gera ef við ættum 200 fermetra einbýlishús í Fjarðabyggð.

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 22. janúar, 2009

Ég uppgötvaði kl. 8 í morgun að ég passa núna í gallabuxur sem hafa verið of þröngar á mig í heilt ár. Þá vissi ég strax að þetta yrði góður dag.

Þremur tímum síðar sagði mbl.is frá því að uppskafningnum Sigmundi Erni hafi loksins verið sagt upp. Þá sannfærðist ég um að dagurinn væri frábær.

Líklega er enn von á góðum fréttum. Virkilega góðum fréttum.

Ef fréttaskýringaþátturinn Kompás hefði ekki verið lagður niður í dag, þá væri þetta hugsanlega besti dagurINN.

[Athugasemdir: 1]
þriðjudagur, 20. janúar, 2009

Staðfestingartölvupóstur, þ.e. sjálfvirka svarið sem maður fær til baka þegar maður sendir stofnunum tölvupóst og tilkynnir manni að erindið sé móttekið, er algjörlega óþarfur og bara pirrandi.

Man einhver eftir því þegar maður fékk alltaf sms til staðfestingar um að smsið sem maður var að senda hefði skilað sér? Sama ruglið.

[Athugasemdir: 3]
mánudagur, 19. janúar, 2009

Ég hef mun meiri áhyggjur af foreldrum þessa lands en æskunni.

[Athugasemdir: 0]
sunnudagur, 18. janúar, 2009

Nú hef ég heyrt því fleygt, oftar en ég kæri mig um að muna, þar sem konur koma saman (í saumaklúbbum, jógatímum og á kaffistofum) að Eiríkur bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs sé þokkafullur maður. Í þessu samhengi hef ég heyrt orðasambönd eins og “sjóðandi heitur”,  “gasalega sjarmerandi” og “ó svo hot”.

Ef einhver kona, jah eða karl með slíkt áhugasvið, velkist í vafa um kynþokka bæjarstjórans, þá hefur Austurgluginn nú loksins farið að þjóna raunverulegu hlutverki sínu og birt mynd sem tekur af allan vafa.

[Athugasemdir: 8]
laugardagur, 17. janúar, 2009

Í gær bakaði ég pizzu sem hefði auðveldlega getað fætt litla Afríkuþjóð. Jóni leist svona líka vel á bökuna.

pizza_b

[Athugasemdir: 2]
laugardagur, 17. janúar, 2009

Ég veit að Loga finnst hann örugglega mjög ungur í anda, eigandi töluvert yngri konu og smábarn, en viltu í guðanna bænum slökkva á FM957 heim hjá ykkur? Þessi talsmáti passar ekki alveg manni á fimmtugsaldri.

[Athugasemdir: 0]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker