header image
föstudagur, 28. nóvember, 2008

Mér finnst óskaplega fyndið og mjög súrealískt um leið, að ástralskur vinur minn, sem skilur afskaplega takmarkað í íslensku, skuli vitna í þetta núna þegar hann er að missa vinnuna vegna kreppunnar:



[Athugasemdir: 3]
fimmtudagur, 27. nóvember, 2008

Í gær sagði vinur minn mér frá samstarfsfélaga sínum. Hann er að gera vinn minn brjálaðan, enda skilst mér að hann hafi gert ýmislegt til að reyna á þolrif samstarfsfélaga sinna almennt.

Umræddur maður segist vera með ótrúlegt minni þegar kemur að símanúmerum. Þess vegna skrifar hann engin númer niður, né setur þau inn í minni farsímans síns. Þegar maðurinn þarf svo að hringja biður hann vin minn, sem situr á næsta borði við hann, alltaf að fletta upp símanúmerinum því þegar á reynir man hann þau ekki.

Ég skil af hverju vini mínum er hætt að finnast þetta fyndið. Ég á sambýlismann sem haldin er sömu ranghugmyndum um sitt minni. Hann hins vegar hefur aldrei treyst á mig þegar kemur að því að hann þurfi að hringja. Nei, nei. Hann hringir bara í vitlaust númer þar til hann hittir á það rétta.

[Athugasemdir: 1]
þriðjudagur, 25. nóvember, 2008

Cold forest by ~estherosp on deviantART

[Athugasemdir: 2]
þriðjudagur, 25. nóvember, 2008

Ég var gjörsamlega upptjúnnuð eftir borgarafundinn í gær. Hann var frábær! Þetta var eitthvað það málefnalegasta og áhugaverðasta úr allri mótmælaflóru síðustu vikna. Það var fræðandi, en um leið mjög sorglegt að sjá í hversu litlum tengslum Geir og Ingibjörg eru við samfélagið.

Eftir að hafa horft á allan fundinn (og varla þorað að skreppa á klósettið), vildi ég meira. Ég varð pirruð þegar farið var að fjalla um eitthvað annað en borgarafundinn í tíufréttunum og hreinlega iðaði í skinninu. Ef Björgvin Valur hefði ekki fjallað um þetta mál í gærkvöldi, þá er ég hreinlega ekki viss um að ég hefði getað farið að sofa um miðnætti.

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 24. nóvember, 2008

Er ekki nokkuð öruggt að í aðgerðaáætlun norska hernaðaralmannatengilsins stóð í síðustu viku:

“Koma fram í léttum viðtalsþætti: sýna á sér mannlegar hliðar, s.s. með því að syngja og rabba við spyril í eldhúsinu, láta vini og samstarfsfólk segja fallega hluti um sig og reyna eftir fremsta megni að brosa.”

[Athugasemdir: 0]
sunnudagur, 23. nóvember, 2008

Í Silfrinu er maður að slá Íslandsmet, ef ekki heimsmet, í líkingamáli. Þetta var ótrúleg frammistaða! Íþróttir, eldsvoði, bara name it.

Mér fannst skemmtilegast þegar hann líkti Davíð Oddssyni við Lalla Johns.

[Athugasemdir: 0]
laugardagur, 22. nóvember, 2008

Flottasta múv lögreglunnar í langan tíma er að hafa sprautað gasi á móður drengsins sem dró Bónus-fánann að húni á Alþingishúsinu.

Þetta er alveg hárrétt leið til að taka á móttmælum og koma í veg fyrir að allt verði vitlaust.

Komum mömmunum á sjúkrahús

[Athugasemdir: 0]
föstudagur, 21. nóvember, 2008

[Athugasemdir: 0]
föstudagur, 21. nóvember, 2008

Ef það er eitthvað sem fer í taugarnar á mér við afgreiðslu fólk, þá er það þegar því tekst að gera einfalda hluti flóknari en þeir eru (ég er trúlega eins og karlmaður að því leyti) og þegar það þarf að sýna hvað það er snjallt þegar það er í raun engin þörf á því. Þetta tvennt sameinast í Tölvlistanum á Egilsstöðum. Ekki bara stundum þegar maður verslar þar, heldur alltaf. Í hvert eitt og einasta skipti. Það truflar mig svo sem ekki mikið svona dagsdaglega, en af því að þetta er eina verslun sinnar tegundar á svæðinu, þá neyðist ég stundum til að leita þangað. Ég legg áherslu á neyðist. Gegn vilja mínum. Fullkomlega.

Í vinnunni er ég með lítinn flakkara sem ég geymi fullt af myndum á. Þessar myndir þarf ég að nota svo til daglega, svo það er ekki gott þegar tölvan hættir skyndilega að finna flakkarann. Það gerðist í gær. Og aftur í dag. Ég nennti ekki neinu óþarfa veseni svo ég og samstarfsmaðurinn minn “trobbúlshjúttuðum” þetta á 2 mínútum, tengdum aðra snúru við hann og allt gekk eins og í sögu. Sumsé, snúran var orðin ónýt. Ekki flókið mál.

Ég stökk niður á neðri hæðina með snúruna, enda græjan enn í ábyrgð og hitti á starfsmann.

Ég: “Hæ. Heyrðu, við keyptum hjá ykkur flakkara í sumar og snúran sem fylgdi honum er orðin ónýt. Get ég fengið nýja, fyrst þetta er enn í ábyrgð?”
Hann: “Já, ekkert mál.” (Þarna hefði ég talið að samtalinu ætti að ljúka, enda einfalt mál) “Ertu búin að prófa aðra snúru?”
Ég: “Já, já.”
Hann: “Já, ok. Flott, þá er þetta ekki flakkarinn sjálfur. Þar varstu heppin.” Fer að hlægja góðlátlega.
Ég: (Alls ekki að nenna þessu) “Nei, nei. Þetta er snúúúran.”
Hann: “Já, flott. Athugaðu tengið á flakkaranum. Hvort það er kannski orðið laust eða…”
Ég: “Ég er BÚIN að því. Þetta er SNÚRAN. Get ég vinsamlegast fengið nýja?”

Honum finnst ég án efa fullkomlega óþolandi líka, enda verð ég það um leið og ég stíg yfir þröskuldinn inn í Tölvulistann á Egilsstöðum.

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 20. nóvember, 2008

Í síðasta mánuði bloggaði ég undir fyrirsögninni “Bubbi fallinn” og fékk 542 heimsóknir í kjölfarið.

[Athugasemdir: 2]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker