header image
þriðjudagur, 30. september, 2008

Hann er með svolítið sérstakt auga. Hann tekur mjög oft myndir af einhverjum augnablikum sem maður vill einmitt ekkert endilega gera ódauðleg. Það eru t.d. til mjög margar myndir af okkur systkinum (þó sérstaklega bróður mínum) sofandi í furðulegum stellingum eða á óvenjulegum stöðum.

Ég renndi að gamni í gegnum myndaalbúmin í tölvunni hans í gærkvöldi og fann tvö gullkorn. Fyrst var ég sannfærð um að þetta væri einhver ömurlegast mynd sem hann hefði náð af mér síðustu misseri.

En svo rakst ég á þessa.

Vel gert.

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 29. september, 2008

Annað hvort er sá sem sér um markaðsmálin hjá Glitni algjörlega kraftþroskaheftur eða bara of illa sofinn eftir næturfundina til að fatta að taka þessa auglýsingu á forsíðunni þeirra út.

Sá hinn sami mætti afturkalla þessa sömu, flennistóru auglýsingu á mbl.is í leiðinni.

Þetta er orðið örlítið vandræðalegt.

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 29. september, 2008

“Er staðreyndin ekki bara sú að þið vitið ekki neitt?” spyr Sigmar forsætisráðherrann.

Segðu bara jú, kjáninn þinn. Þett’er búið.

[Athugasemdir: 0]
laugardagur, 27. september, 2008

Tvær kökur in the making. Afmælisdagur ástmannsins í dag.

[Athugasemdir: 1]
föstudagur, 26. september, 2008

Mikið viðbjóðslega er ég orðin þreytt á efnahagsfréttum. Það lokast fyrir öll skilningarvit hjá mér þegar þær skella á. Ég hvorki heyri né sé. Ojj.

Hvernig í ósköpunum getur allt þetta fólk lært viðskiptafræði, svona rétt eins og hún sé svakalega skemmtileg?

[Athugasemdir: 1]
fimmtudagur, 25. september, 2008

Þetta var nú alveg hreint frááábært að frétta.

Veit ekki hvorn ég hefði viljað frekar hingað, þennan jólasvein eða handrukkarann.

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 22. september, 2008

Þegar maður býr í litlu samfélagi veit maður nokkuð vel hverjir eru í hvaða vinahópi og skilin þar á milli eru oft ansi skýr. Eitt af því sem ber fyrir augu út um skrifstofugluggann minn eru ungu mömmurnar, stelpur sem voru að eignast sitt fyrsta barn. Þær rölta saman í bæinn, yfirleitt tvær til fjórar, með vagnana sína og kerrurnar, kaupa sér ís eða kaffi, slúðra og skiptast á reynslusögum.

Það merkilega við þessa mömmuhópa er að í þeim virðast mætast stelpur fyrir nokkrum mánuðum tilheyrðu einhverjum allt öðrum vinahópum. Stelpur sem ekkert eiga sameiginlegt (annað en það að eiga nokkra mánaða gömul börn) og hafa engan veginn sótt í félagsskap hver annarrar – jafnvel forðast hver aðra eins og heitan eldinn – eru skyndilega orðnar vinkonur. Börnin eru sumsé farin að velja vini fyrir mömmur sínar.

Ég held að það sé því algjör lykilatriði að vinkonur taki sig hreinlega saman um tímasetningar barneigna. Ég mælist hér með til þess að þær vinkonur mínar sem ekki eru búnar að unga út fyrsta krílinu beri hag okkar vináttu fyrir brjósti, láti mig vita (helst eftir svona 3, kannski 4 ár) og flytji austur til að borða með mér ís og ræða um mismunandi litróf bleyjuinnihalds.

[Athugasemdir: 8]
föstudagur, 19. september, 2008

Ég er nörd.

Ég er komin með könnu á skrifborðið mitt í vinnunni með heimasíðulógóinu mínu.

[Athugasemdir: 2]
þriðjudagur, 16. september, 2008

Man einhver eftir pabbanum úr My Big Fat Greek Wedding? Hann trúði því statt og stöðugt að rúðusprey bjargaði öllu og sprautaði því m.a. á brunasár.

Pabbi minn er líka svona. Í hans tilfelli er það ekki rúðusprey, heldur WD-40. Mér fannst þessi heittrú farin að ganga svolítið langt en svo rakst ég á heimasíðu(!) WD-40 og sá þetta: Offical list of 2000+ uses. Rennir vissulega stoðum undir hans kenningar.

[Athugasemdir: 2]
þriðjudagur, 16. september, 2008

Hann: Do you smoke?
Ég: No.
Hann: Have you ever smoked?
Ég: No, never.
Hann: Why not? It’s great!

[Athugasemdir: 1]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker