header image
laugardagur, 30. ágúst, 2008

“Það er alveg ótrúlegt hvað margir einhleypir karlmenn eru metnaðarlausir þegar kemur að rúmfötum.”

[Athugasemdir: 3]
föstudagur, 29. ágúst, 2008

Það fer óstjórnlega í taugarnar á mér þegar fólk segir “Við sjáumstum”.

[Athugasemdir: 7]
þriðjudagur, 26. ágúst, 2008

Jæja. Þá er blessuð ritgerðin farin til leiðbeinandans, í fyrsta sinn í heild sinni. Nú bíð ég bara heima með krosslagða fingur og vona að honum lítist þokkalega á þetta.

Þangað til verð ég uggandi.

[Athugasemdir: 5]
mánudagur, 25. ágúst, 2008

Við skötuhjú skelltum okkur í gönguferð í Fáskrúðsfirði í gær. Ætluðum upphaflega bara upp á Engihjalla en ákváðum þegar upp var komið að rölta niður Gilsárdal.

Fleiri myndir hér.

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 21. ágúst, 2008

“Maður verður að kunna að hætta þegar maður er beðinn um það. Veistu það, hann Árni Johnsen…”

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 21. ágúst, 2008

Ég er svakalega skotin í bílaleigubílnum sem ég er á. Ég hef þurft að keyra mikið síðustu daga. Á þessum rétt rúmu 500 km hefur bílinn eytt tæplega hálfum tanki af bensíni. Hvernig í ósköpunum má það vera? Þetta þykir mér fáránlega góður díll á þessum síðustu og verstu bensíntímum.

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 21. ágúst, 2008

Hressing í skógræktarlandi við Spóastaði á Suðurlandi.

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 20. ágúst, 2008

[Athugasemdir: 3]
þriðjudagur, 19. ágúst, 2008

Ein af þeim (á að giska) 7 myndum sem ég tók í sumar. Planið næsta sumar er klárlega minni vinna og meira svona:

[Athugasemdir: 0]
þriðjudagur, 19. ágúst, 2008

Mér finnst yndislegt að kaupa mér ruslmat í gegnum bílalúgu og troða honum í mig, án þess að þurfa að standa upp.

Tek það fram að þetta geri ég nú samt ekki oftar en einu sinni á ári.

[Athugasemdir: 0]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker