header image
mánudagur, 30. júní, 2008

Þá erum við komin heim. Það var gífurlega þreytt fólk sem renndi í hlað á Egilsstöðum kl. 1:30 í nótt (eða 3:30 að okkar danska tíma).

Við lentum heilu og höldnu á Akureyri kl. 4 í gær, klukkutíma á eftir áætlun. Fyrir tilviljun horfðum við á tveggja klst. langan flugslysaþátt á meðan við pökkuðum fyrir flugið. Mjög snjallt, ég veit. Það kom því einhverra hluta vegna ekkert svakalega á óvart þegar okkur plantað við hliðina á neyðaútgangi í flugvélinni og flugþjónninn sýndi okkur hvernig við ættum að rífa hurðina úr kæmi til nauðlendingar.

Við ákváðum að koma við í bústað hjá tengdó, borða grillmat og horfa á leikinn áður en við héldum austur. Fínasta hugmynd í sjálfu sér en ekki svo fínt að þurfa að hafa Magic í æð til að halda sér vakandi alla leið austur. Ég var svo mætt í vinnunna kl. 9 í morgun og sýnist ég ætla að hafa daginn af sem hálfgerður svefngengill. Kökurnar sem einhver var svo elskulegur að koma með í morgunkaffinu halda í mér lífinu.

Satt best að segja langaði okkur ekkert heim í gær. Við hefðum alveg verið til í að vera nokkrar vikur í viðbót í Köben. Við höfuð það virkilega gott og í fyrsta sinn skildi ég þennan “Köben fever” sem allir Íslendingar virðast fá a.m.k. einu sinni á ævinni. Ég væri alveg til í að búa í borg þar sem maður má ekki draga upp kort án þess að heimamenn stoppi hjá manni til að bjóða fram hjálp sína. Ef ég tryði á æðri máttarvöld þá myndi ég halda að þau væru virkilega að stuðla að flutningum mínum úr landi. Það spáir rigningu á Egilsstöðum í dag, á morgun, á miðvikudaginn, á fimmtudaginn og á föstudaginn. Gleði.

[Athugasemdir: 1]
föstudagur, 27. júní, 2008

Það er auðvitað alltaf hið besta mál að símasendum sé fjölgað, en hvenær á eiginlega að nást samband í blokkinni minni á Egilsstöðum?

[Athugasemdir: 3]
föstudagur, 27. júní, 2008

Eg hef mikid velt thessari snilldarlegu lausn danskra kvenna a “bad hair day” fyrir mer undanfarna daga.

Svo sagdi mer einhver ad liklega væru thessar konur muslimar.

[Athugasemdir: 0]
föstudagur, 27. júní, 2008

Í nótt dreymdi mig að ég væri stödd á Borgarfirði eystri og að þar væri að finna plöntur sem bæru ekki ávexti né köngla, heldur rúgbrauðssneiðar.

Ráðningar óskast.

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 26. júní, 2008

Vil bara benda a (og vona ad folk geti lesid thessa aminningu thratt fyrir skort a islenskum støfum) ad fra thessum drykk sagdi eg ykkur i september 2006. Eg ætla rett ad vona ad Ragnar Jonsson hafi fengid einhverja umbun fyrir nafnid a drykknum.

[Athugasemdir: 1]
þriðjudagur, 24. júní, 2008

Í gær sagði mér Dani að dýravernd væri mjög hátt skrifuð í landinu um þessar mundir. Engin góðgerðarsamtök hefðu fengið jafn mikil fjárframlög frá almenningi eins og dýraverndunarsamtök á síðasta ári

Hann sagði að ef hinum venjulega Dana væri rétt byssa, fyrir framan hann væru lítil kanína og múslimi og hann þyrfti að skjóta annað hvort – þá léti hann umhugsunarlaust vaða á múslimann.

[Athugasemdir: 4]
laugardagur, 21. júní, 2008

Við erum mætt til kóngsins Köben. Eftir að hafa verið rekin úr skónum og tölvan hafði verið rifin upp úr tölvutöskunni til rannsóknar, settumst við um borð í flugvélina. Vorum svo stálheppin að lenda í sætaröð fyrir framan þrjár gelgjur sem sungu alla leiðina en við lásum svo stíft að við hættum fljótt að heyra í þeim.

Eftir eldsnögga gönguferð í gegnum Kastrup og töluvert lengri og ruglingslegri leigubílaferð vorum við komin á áfangastað. Vegna innrætingar efnahagslegrar vænisýki sem íslenskir fjölmiðlar hafa stundað grimmt síðustu vikur var ég viss um að danska krónan væri nú 77 kr. íslenskar – ekki 17. Þið getið því ímyndað ykkur svipinn á mér þegar leigubílstjórinn rukkaði okkur um 140 kr. danskar fyrir rúntinn. En hvað hefðu 11.000 íslenskar krónur svo sem verið á milli heimska íslenska túristans og asíska leigubílstjórans?

Við erum svo heppin að félagi Jóns bauðst til að hýsa okkur. Húsráðendur voru ekki heima í dag svo við skunduðum til nágranna þeirra til að fá lykil. Þar hittum við fyrir tilviljun hressasta Austfirðinginn (jafnvel Íslendinginn), en hann er búsettur í Köben um þessar mundir. Hann tók okkur að sér, bauð okkur í grill og kíkti svo með okkur á hverfisbarinn. Vinsamlegheitin í Dönum virðast hafa smitandi áhrif. Allir Íslendingarnir sem við rekumst á hérna í Köben eru fram úr hófi vinsamlegir.

Þegar ég kem hingað þá skil ég ekki af hverju við Jón búum ekki hérna. Hér er vinalegra fólk, betra veður, ódýrara að lifa og minna stress. Hér er meira að segja svo lítið stress að hætt var að hafa opið um helgar í vinsælasta bakaríinu í hverfinu vegna þess hve mikið var að gera. Of mikið.

[Athugasemdir: 1]
föstudagur, 20. júní, 2008

Við erum farin til Köben til að borða meiri ís á Strikinu.

Jón og Esther á Strikinu í maí 2007

Að vísu ætla ég að vinna, þ.e. kynna mér starfsemi danskra ríkisskóga. Á meðan mun Jón lifa bóhemlífi á kaffihúsunum á daginn en bjóða mér svo út að borða á kvöldin. Þetta verður næs.

Sjáumst í júlí.

[Athugasemdir: 0]
laugardagur, 14. júní, 2008

Við skötuhjú ætlum að skella okkur á Akureyri um helgina og dvelja þar í sumarbústað. Það er ekkert nema afslappelsi, át, drykkja, leti, yndislestur og notalegheit á dagskrá næstu 4 dagana. Það verður yndislegt.

Á miðvikudag og fimmtudag ætla ég síðan að kynnast samstarfsfólki mínu á Norðurlandi og skoða með þeim skóga.

[Athugasemdir: 2]
föstudagur, 13. júní, 2008

Ég kann vel við stórmennskubrjálæði Akureyringa sem birtist m.a. í því að þar er að finna eina Borgarbíó landsins.

[Athugasemdir: 0]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker