header image
laugardagur, 31. maí, 2008

Það er svo mikið að gera hjá mér þessa dagana. Mér sýnist júní ætla að þjóta framhjá á u.þ.b. einni og hálfri viku. Hér er dagskráin:

1. – 4. júní: Vordagar í skólanum. Klára að gefa allar einkunnir, ganga frá og ljúka skólaárinu með 7. bekk.

5. – 8. júní: Vinna í ritgerðinni, sem vonandi verður á lokastigum eftir þessa löngu helgi.

9. júní: Hefja störf sem kynningarstjóri Skógræktar ríkinsins. Vinna á Egilsstöðum fyrstu vikuna.

14. – 17. júní: Dvelja í sumarbústað norður í landi. Tóm afslöppun.

18. – 20. júní: Vinna á Norðurlandi.

20. – 29. júní: Vinnuferð til Kaupmannahafnar.

29. júní: Koma dauðþreytt heim til Egilsstaða með hrúgu af óhreinum fötum og útbrunnið VISA-kort.

[Athugasemdir: 4]
laugardagur, 31. maí, 2008

Flottasta skjálftamyndin er frá Guðmundi Bergkvist.

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 26. maí, 2008

Einmitt þegar maður var sannfærðum um að það væri ekki hægt þá toppar Leoncie sjálfa sig. Þetta er skylduáhorf.

Hvernig henni tekst að romsa út úr sér öllum atkvæðunum í laglíunni “þessi leigugúmmídúkka fær aldrei að flytja inn hér” veit ég hreinlega ekki, en til þess þarf vissulega hæfileika.

[Athugasemdir: 2]
föstudagur, 23. maí, 2008

Eins og stígurinn undir Eyvindarárbrúna er nú hentugur og öruggur þegar ferðast er með stóran hóp barna, þá er frekar erfitt að útskýra fyrir 4. bekk hvað “fokkaðu þér tussa” þýðir.

Brúin yfir Eyvindará

En það er nú gott að börnin læra ný orð og það af mannvirkjum bæjarins.

Húrra fyrir Egilsstöðum (sem getur greinilega farið að kalla sig alvöru bæ fyrst veggjakrotið er komið).

[Athugasemdir: 3]
miðvikudagur, 21. maí, 2008

Ég elska heilbrigt fólk sem leggur í stæði fyrir fatlaða.

Mér þykir virkilega vænt um ofurágenga snyrtifræðinga sem elta mann á röndum í apótekum þó maður sé búinn að segja þeim fjórum sinnum að mann vanti alls ekki aðstoð.

Ég dáist að fullorðnu fólki sem kann ekki að beygja nafnið sitt rétt.

Ég unni hverfinu mínu á Egilsstöðum þar sem heita vatnið er reglulega tekið af án þess að íbúar séu látnir vita.

Ég ber mikinn kærleik til götunnar minnar sem er búin að vera sundirgrafin svo vikum skiptir.

[Athugasemdir: 1]
mánudagur, 19. maí, 2008

[Athugasemdir: 0]
laugardagur, 17. maí, 2008

Fyrirfram var ég búin að ákveða að Anna í Grænuhlíð væri eitthvert endemis kántrírusl frá Kananum. Þvílík mistök. Fyrsta bókin (af þremur) er stórfengleg! Þegar maður rannsakar rautt hár í barnabókmenntum þá er þessi bók trúlega eitt mesta gull sem hægt er að finna.

Anna er sannfærð um að ekkert í heiminum sé ömurlegra en að vera rauðhærður. Þegar Anna talar um hárið sitt, þá mætti halda að nasisti væri þarna að tala um samkynhneigðan gyðing.

„Já, það er rautt,” sagði hún hnuggin á svip, „alveg eldrautt. Skiljið þér nú hvers vegna ég get ekki orðið virkilega hamingjusöm? Það getur enginn sem er rauðhærður. Mér er alveg sama þó ég sé freknótt og mögur og gráeyg. Ég get hugsað mér að það sé allt orðið umbreytt. Ég get ímyndað mér að ég hafi bjartan og fallegan hörundslit og yndisleg, blá augu en ég get alls ekki talið mér trú um að hárið sé öðruvísi en það er. Og þess vegna finnst mér stundum að ég muni aldrei framar geta litið glaðan dag. En hvað það hlýtur að vera dásamlegt að vera falleg!”

„Ég skyldi bera möglunarlaust allt sem á mig yrði lagt ef ég bara mætti vona að hárið á mér yrði einhverntíma brúnt.”

Upphafsorð annarrar bókarinnar eru samt í uppáhaldi hjá mér:

„Sólin kastaði gullnum bjarma á þykka, liðaða hárið sem vinir hennar kölluðu kastaníubrúnt, en óvinir hennar rautt.”

[Athugasemdir: 6]
laugardagur, 17. maí, 2008

Þrasið í mér bar árangur. Umsókn mín um að fá að taka masterinn í fjarnámi var samþykkt – þó það ætti nú ekki að vera hægt. Núna hef ég 2 vikur til að taka endanlega ákvörðun og borga brúsann.

En nú, þegar búið er að samþykkja dutlungana í mér, þá er ég hreint ekki viss um að mig langi nógu mikið til að vera námsmaður áfram. Í fyrsta sinn á ævinni er ég eiginlega komin með námsleiða. Ég hef verið stanslaust í skóla frá því ég var 6 ára, svo það er líklega alveg kominn tími til að taka örlitla pásu. Það er vissulega freistandi tilhugsun að geta eytt desemberkvöldum í smákökubakstur og helgum í maí í sundferðir og ísát – í stað þess að sitja inni og lesa úr sér lífsgleðina.

Ég held því að ég taki hlé næsta vetur. Það verður ljúft að koma heim úr vinnunni og geta eytt heilu kvöldi í hangs með góðri samvisku. Það er nægur tími til að bæta á sig prófgráðum ennþá.

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 14. maí, 2008

Ég hef nýlega uppgötvað að ég gæti ekki átt kærasta/unnusta/mann sem fylgdist enska boltanum af einhverjum metnaði. Ég veit ekki af hverju, en ég bara gæti það ekki. Það færi ekki svona nett í taugarnar á mér, eins og þegar menn skilja setuna alltaf eftir uppi eða ganga í þröngum, kvenlegum nærbuxum. Gífurlegur áhugi á enska boltanum færi endalaust í taugarnar á mér.

Áhugi á handbolta? Í góðu lagi. Áhugi á íshokkí, kappakstri, golfi, sundi, körfubolta, frjálsum, skíðum. Gæti sætt mig við þetta allt. Meira að segja myndi ég næstum því frekar vilja mann sem hefði brjálaðan áhuga hestum en mann sem horfði vikulega á leik í enska boltanum.

Ég veit að þetta er algjörlega órökrétt, en það eru svona hlutir bara. Mér fannst t.d. ægilega fyndið þegar vinkona mín hætti við að deita strák af því að hann var með sorgarrendur undir nöglunum. Það meikaði samt sens fyrir hana. Fullkomlega.

[Athugasemdir: 3]
mánudagur, 12. maí, 2008

Í dag á elskuleg móðir mín stórafmæli.

Vegna þess að ég veit hversu miklar áhyggjur hún hefur í langan tíma haft af stöðnuðu útliti Rauðhausanna fannst mér tilvalið að gefa henni þessa andlitslyftingu í afmælisgjöf.

[Athugasemdir: 4]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker