header image
fimmtudagur, 31. janúar, 2008

Jón fór í klippingu í síðustu viku. Þegar við stóðum bæði við eldavélina það kvöld, sagði hann: “Stelpan sem klippti mig bauðst til að lána mér klám.”

Ég: “Ha?! Hvað meinarðu?”

Hann: “Hún bauðst bara til lána mér það á DVD.”

Ég: “Bara svona upp úr þurru?”

Hann: “Já. Ég meina, við þekkjumst alveg sko. Við vorum saman í grunnskóla.”

Ég: “Ha, ha! Ha? Er það nóg ástæða fyrir því að bjóðast til á lána þér klám?”

Hann: “Haaa…? Nei, KLOVN!”

Ég: “Óóó…”

RÚV hefur sýningar á annari seríu hinnar stórskemmtilegu, dönsku þáttaraðar Klovn í kvöld. Það er ekki oft sem ég mæli með einhverju dönsku en þetta sjónvarpsefni er gullið.

[Athugasemdir: 4]
þriðjudagur, 29. janúar, 2008

Jónsi kom út úr skápnum” er búin að vera mest lesna fréttin á mbl.is í allan dag. Frekar sorglegt, en samt einhvern veginn ánægjuleg tilbreyting frá fréttum af sálarkreppu Britney Spears.

[Athugasemdir: 3]
þriðjudagur, 29. janúar, 2008

Í nótt svaf ég í 12 og hálfa klukkustund, eða frá 19:30 – 8:00. Það er svipuð svefnlengd og hjá 1 árs gömlu barni.

Í dag er ég slappari en allt og langar bara að sofa meira.

Ojj.

[Athugasemdir: 0]
mánudagur, 28. janúar, 2008

Það er í frásögu færandi að ég hlóg að Spaugstofunni síðastliðið laugardagskvöld. Þetta mun líklega vera í fyrsta sinn síðan páskaþátturinn frægi var sýndur og Spaugstofunni stefnt í kjölfarið. Svo virðist sem þeir Spaugstofumenn þurfi að ganga of langt (að mati þeirra sem gert grín að) svo mér finnist það fyndið.

En það er ekki öllum skemmt. Fyrrverandi kennari minn í fjölmiðlafræði, Guðbjörg H. Kolbeins (sem sumir kannast við úr stóra Smáralindarbæklingsmálinu) er hreint ekki sátt. Nú leyfir Guðbjörg fólki einhverra hluta vegna ekki að skrifa athugasemdir við skrif sín og því verð ég að nota þessa síðu til að benda henni á að hún fer með rangt mál. Hún segir eftirfarandi um Spaugstofuþáttinn sem sýndur var s.l. laugardagskvöld:

Verst er að foreldrar sitja fyrir framan sjónvarpstækið með börnum sínum í góðri trú um að það efni sem boðið verði upp á sé börnunum að meinalausu.”

Þetta eru undarleg ummæli í ljósi þess að þulan sem kynnti þáttinn varaði sérstaklega við því að atriði í honum gætu vakið óhug meðal barna eða viðkvæmra.

Skjóta fyrst og spyrja svo?

[Athugasemdir: 2]
sunnudagur, 27. janúar, 2008

Ég er bara alltaf að uppgötva einhverja nýja, bráðnauðsynlega fídusa á símanum mínum.

Apa-Jón

[Athugasemdir: 0]
fimmtudagur, 24. janúar, 2008

Ólafur F. Magnússon sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að hávaði í mótmælendum á pöllum ráðhússins í Reykjavík hefði verið “skekkja á lýðræðinu”.

Já, einmitt, ÞAÐ er skekkja á lýðræðinu.

Mhmm.

Karlgreyið. Ég sé fyrir mér þegar hann mætir næst til sálfræðingsins síns.
“Nei, veistu, þetta er ekki ofsóknarbrjálæði í þér. Það ERU allir á móti þér, Ólafur minn.”

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 23. janúar, 2008

Ætli kvenkyns öfgafemínistar pissi með opna hurð eða fyrir framan manninn sinn á meðan hann burstar tennurnar?

[Athugasemdir: 3]
sunnudagur, 20. janúar, 2008

Ég gat ekki annað en verið sammála fyrrum kennara mínum, Ármanni Jakobssyni, þegar hann sagði: “Mér finnst fundir eiginlega tilgangslausir, svona langflestir. Skástir ef það eru bara tvær manneskjur, stundum í lagi ef þær eru svona þrjár fjórar. Um leið og þær eru orðnar fleiri, þá er tíminn að nýtast verr en ef ég hefði bara verið einn.”

Kæru vinnuveitendur þessa lands, vinsamlegast takið þetta til athugunar.

[Athugasemdir: 1]
sunnudagur, 20. janúar, 2008

Rómantík ástmannsins á sér engin takmörk þessa dagana.

Í gær skrapp ég í sólarhring niður á Fáskrúðsfjörð. Hann sagði mér á MSN að hann saknaði mín eiginlega. Eiginlega, já.

Í dag kallaði hann mig mongólíta.

Ég bíð í ofvæni eftir rómantík morgundagsins.

[Athugasemdir: 0]
sunnudagur, 20. janúar, 2008

Er Egill Helga farinn að pikka upp takta frá Dr. Phil?

“Segðu mér, Guðjón Ólafur. Voru þið Björn Ingi ekki vinir? Hvað gerðist?”

[Athugasemdir: 0]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker