header image
föstudagur, 30. nóvember, 2007

Ég heyrði útundan mér í dag að tveir nemendur mínir voru mjög ósammála. Þegar ég vatt mér að þeim og spurði um hvað þeir væru að rífast, sagði annar þeirra:
“Sko. Hvort er það Elton John eða John Lennon sem er dáinn?”

Áður en mér gafst færi á að svara, sagði hinn:
“John Lennon? Ó, ég hélt að þú hefðir verið að meina Jay Leno!”

Þetta fannst mér fyndið.

[Athugasemdir: 1]
fimmtudagur, 29. nóvember, 2007

Óléttusagan um mig ætlar aldeilis að reynast langlíf. Þrátt fyrir að við Jón höfum bæði hæðst að þessari sögu í fyrri bloggskrifum þá virðist fólk endilega vilja að ég sé ólétt. Sumir hafa því lesið það sem þeir vildu út úr háðinu.

Til að koma í veg fyrir frekari misskilning þá afneitum við meintum erfingja hér í þriðja sinn og ítrekum að ég er ekki ólétt. Við lofum að láta vita þegar að því kemur (en ekki bíða mjög spennt samt, því biðin verður nokkur).

[Athugasemdir: 4]
fimmtudagur, 29. nóvember, 2007

Stundum finnst mér ég vera að missa trúna á ungdómi þessa lands. Svo hitti börnin í bekknum mínum.

Þessir krakkar eru yndislegir. Það er hægt að ræða við þau um hvað sem er; reykingar, bílpróf, kosningar, internetið og trúmál. Þau vita skuggalega mikið og eru nú bara 12 ára ennþá. Það sem er jafnvel skemmtilegra er að þau kunna að leika sér. Ég hitti þau áðan á leið minni í íþróttahúsið. Stór hluti bekkjarins renndi sér í hálkunni á göngustígnum við skólann. Ég var svo hamingjusöm að sjá að þau væru ekki farin heim í tölvuna strax eftir að skóla lyki að ég gat ekki skorast undan áskoruninni frá þeim og renndi mér eina hressilega fótskriðu, eins og þau. Er alveg komin úr æfingu en hékk þó á löppunum.

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 28. nóvember, 2007

Skrítið að það hafi ekki fleiri ungar, ákveðnar konur gengið til liðs við Femínistafélag Íslands.

Helstu baráttumálin þeirra þessa vikuna eru tvö:
Annað er að fá að komast í þáttinn hans Egils.
Hitt snýst um barnaföt.

Það er nú alltaf gott að kunna að forgangsraða.

[Athugasemdir: 6]
þriðjudagur, 27. nóvember, 2007

Mikið agalega lítur þetta út fyrir að vera óspennandi lesning.

Dæs.

Að vísu hef ég kynnst nokkrum stórskemmtilegum Alzheimers-sjúklingum. Ef ég hefði ekki skítsæmilega siðferðiskennd þá gæti ég deilt mörgum skemmtilegum sögum hér.

[Athugasemdir: 4]
laugardagur, 24. nóvember, 2007

Hvaða refsingu ætli Kölski telji nægilega fyrir þá sem vilja alltaf æstir fara í samkvæmisleiki þar sem fleiri en tveir koma saman?

[Athugasemdir: 4]
fimmtudagur, 22. nóvember, 2007

Ég tek ofan fyrir þeim snillingi sem datt í hug að kalla ýmis konar kjöt- og hlaupsull, sem á íslensku kallast bara kæfa, paté og hækka verðmæti þess um nokkur hundruð prósent.

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 21. nóvember, 2007

Þar sem ég var ekkert nema öfundsjúkt biddsj þegar síðusta fegurðarsamkeppni dundi yfir, þá ætla ég nú að vera jákvæð og uppbyggleg núna. Herra Ísland er í sjónvarpinu.

Stelpurnar í Nylon verða sífellt meira slöttí. Þær voru að enda við að hnoðast á sviðinu sem einhvers konar “skemmtiatriði”, syngjandi “Shut up!”. Þess verður ekki langt að bíða að varla megi á milli sjá hvort um sé að ræða Nylon eða The Pussycat Dolls. Einmitt það sem heiminn vantaði; fleiri ókeypis strippara með míkrafóna.
Það var nú samt gaman að sjá að Birgittu Haukdal var hleypt upp á svið með sellóleikara yfir kjörþyngd með sér.

Í kynningunni var tekið fram að Yesmine Olsen væri “listrænn höfundur” sýningarinnar. Listrænn höfundur? Svo mátti ég ekki skrá mig “ljónatemjara” í símaskránni.

Í byrjun keppninnar tilkynnti einn þátttakandinn að hann eldaði ekki fisk. Hvaðan haldið þið nú að hann hafi verið? Neskaupstað? Já, passar. Hann segist vera meira fyrir pasta, þessi elska.

Þegar karlmenn spranga um fyrir framan dómnefnd er auðvitað hæpið að fá sokkabuxnaframleiðendur til að borga brúsann. Ætli það sé þess vegna sem strákarnir bera nú húsgögn, mottur og vasa frá Habitat inn á sviðið? Einkar undarlegt atriði.

Ég hélt bæði með þeim sem taldi sitt helsta afrek vera að hafa flutt að heiman 18 ára og þeim sem sagði að draumakonuna sín a vera eins og stelpurnar í Nylon.

Svo töpuðu þessir aumingja fyrir stelpum í fótbolta. Stelpum!

Jákvæð og uppbyggleg, já?
Sorry, ég reyndi.

[Athugasemdir: 11]
mánudagur, 19. nóvember, 2007

Ég verð að taka undir með Stefáni og segja að ég hlakki til að sjá svar menntamálaráðherra við þessum spurningum.

[Athugasemdir: 0]
sunnudagur, 18. nóvember, 2007

Þó ég geti ekki sagt að ég sakni næturlífsins í Reykjavík tilfinnanlega mikið þá er eitthvað svolítið krúttlegt við að geta ekki farið inn á bar með vinkonum sínum án þess að a.m.k. ein úr hópnum reyni að fela sig fyrir fyrrverandi kærasta, önnur hitti hjásvæfuna og sú þriðja fari heim með skotinu sínu. Það er líka vinalegt að ganga niður Laugaveginn kl. 5 að nóttu og geta ekki sagt sögu af manni án þess að mæta honum í miðri frásögn.

Reykjavík er trúlega leynilegasta krummaskuð landsins.

[Athugasemdir: 1]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker