raudhausar.com/esther
Próflestur í 20 stiga hita og andleysið er algjört. Ég ákvað, þegar ég skrifaði undir ráðningarsamning á nýjumst vinnustað fyrir rúmum mánuði síðan, að geyma ritgerðina bara fram á haust til að neyðast nú ekki til þess að eyða þeim fáum sólríku frídögum sem ég ætti í lærdóm. Núna, í apríl, sit ég sveitt innandyra og bölva helvítis blíðunni.
Merkilegt annars að það vaknar alltaf í mér tölvuleikjafíkill á próftímum. Í fyrra var það Bubble Shooter og núna er það gamli góði Tetris (sem hefur reyndar fengið einhverja andlitslyftingu). Ég er komin í 26. borð and counting.
[Athugasemdir: 3]
Ég á vinkonu sem enginn maður gæti gert hamingjusama nema hann ætti hús á Arnarnesinu. Hún átti afmæli í gær og ég keypti bók handa henni í afmælisgjöf sem heitir “How To Marry A Multi-millionaire: The Ultimate Guide To High Net Worth Dating”. Mér fannst þetta rosalega fyndið hjá mér – þangað til núna. Amazon gjörsamlega ofsækir mig með tilboðum á bókum eins og…
* How to Join the Club of the Rich and Famous: The Shortcut
* How to meet the Rich: For Business, Friendship, or Romance
* UpDating: How to Date Out of Your League
* How to Get a Rich Man: The Princess Formula
* How to Marry Money: The Simple Path to Love and Glory
* 9 Secrets of the Rich and Famous That’ll Take You to the Top
Nú eru þetta myndarlegustu stúlkur og allt það en ég get ekki annað en látið líkamsstöðu þessarar til vinstri trufla mig lítillega.
Munið þið hvað gerðist þegar maður sneri höfðinu á Barbie-dúkkunum aðeins of mikið…?
[Athugasemdir: 4]
Þetta er án efa skemmtilegasta uppskrift sem ég hef séð.
Engar áhyggjur, þetta er ekki að breytast í húsmæðrablogg.
[Athugasemdir: 0]
Þó að ég beri ekki sterkar tilfinningar til næturlífsins í miðbæ Reykjavíkur, þá verð ég að viðurkenna að það hefði vakið meiri sorg í hjarta mínu að sjá nánast hvaða skemmtistað annan en Pravda í ljósum logum.
[Athugasemdir: 5]
Góðhjörtuðu konurnar á pósthúsinu á Reyðarfirði horfðu á mig vorkunaraugum í dag þegar þær afhentu mér pakkann sem var merktur “Esther Ösp Gunnarsdóttir (Rauðhausar)” og sögðust ekkert skilja í því að einhverjum finndist þetta fyndið. Ég reyndi að útskýra þessa merkingu í sem stystu máli en ég held að þær hafi ekkert heyrt fyrir taugaveikluðum og afskandi hlátrinum í sjálfum sér eftir að ég sagði “Nei, þetta er sko ekkert illa meint. Ég er með heimasíðu…”
Fyrstu Rauðhausabolirnir komu sumsé úr prentun í dag. Þeir eru svona líka fagrir. Hér með er hægt að panta þá (og annan varning) í vefversluninni okkar. Ég reikna með að úrvalið verði blómlegra með hækkandi sól.
[Athugasemdir: 2]
Ég sit hérna við skrifborðið mitt og er búin að henda heilum haug af pappír, hirða einstaka blað og raða, flokka og ganga frá. Undarleg tilfinning að sitja svona við tómt borð. Dálítið súrsætt. Það sem ég kveið mest fyrir varðandi það að hætta var að missa af daglegum samskiptum við þetta frábæra fólk sem ég hef unnið með. Nú virðist hins vegar vera að ég þurfi ekki að hafa svo miklar áhyggjur af því. Ekki nóg með að Hafrún ætli að elta mig, þ.e. ráða sig í vinnu í sama húsi og ég, heldur ætlar Halli líka að flytja í blokkina mína. Spurning hvort ég geti ekki narrað eitthvað fleira gott fólk til mín.
[Athugasemdir: 0]
Mér finnst ljóð yfirleitt ekkert sérstaklega skemmtilegt tjáningarform en þetta ástarljóð er með þeim betri.
Talandi um ást, eru ekki allir búnir að sjá MySpace-ástarsöguna miklu?
Viðbót kl. 9:20 – Eins og þessi blessaða ástarsaga sé nú ekki nógu fyndin ein og sér, þá er hér um að ræða hina einu sönnu Heiðveigu, fyrrum kærustu Grétars líkmanns. Er þetta farið að minna einhvern annan á þrælgóða sápuóperu?
[Athugasemdir: 6]
Væri ekki einhver til í að gefa mér svona? Hversu oft hefur maður einmitt verið í miðju símtali og hugsað “nú væri sko gott að geta skellt inn smá barnsgráti”, að ég tali nú ekki um prumphljóði.
[Athugasemdir: 0]
Mér finnst austurlandid.is hafa óþægilega mikinn áhuga á að segja fréttir af Esso/N1 (sjá hér og hér) og ég sé ekki alveg hvernig þessar fréttir geta talist austlenskar. Óttaleg gúrkútíð hlýtur að vera hér í fjórðungnum.
[Athugasemdir: 2]