header image
miðvikudagur, 31. janúar, 2007

Í síðustu viku sagði vinur minn, Pólverjinn, mér að hann hefði ekki nokkurn áhuga á handbolta og það sama ætti við megnið af pólsku þjóðinni. Það þýddi því ekkert fyrir mig að ræða HM við sig þó hann segðist ráma í að hafa heyrt að Pólland væri að keppa á mótinu.

Í morgun keyrði ég til Eskifjarðar og Norðfjarðar með þessum sama samstarfsmanni mínum. Um leið og við vorum lögð af stað byrjaði hann að lýsa á magnþrunginn hátt og með blik í auga, leik Rússa og Pólverja í gær. Hann bölvaði Rússunum í sand og ösku og var sýnilega verulega snortinn yfir því að þjóð sinni hefði tekist að sigra helvítis kommúnistana. Svo hélt hann langa tölu um hvers konar illmenni Stalín hefði verið og Hitler væri í raun hinn mesti sunnudagaskóladrengur við hans hlið. Ég hætti að hlusta eftir nokkrar mínútur enda heyrt þennan fyrirlestur hans allnokkrum sinnum áður.

Þögn.

Hann: “So, did you do anything fun last weekend?”
Ég: “Yes, I went to the annual Icelandic festival called Þorrablót. Do you know what it is?”
Hann: “Yeess! That’s great. And where was it? In Fáskrúðsfjörður?”
Ég: “No, in Neskaupstaður. It’s called the Communist Þorrablót and…”
Hann: “WHAAAT?!”

Æhji, fokk.

[Athugasemdir: 3]
þriðjudagur, 30. janúar, 2007

Einhverra hluta vegna orsakaðist það að báðar konurnar sem ég treysti á að myndu horfa á landsleikinn með mér forfölluðust. Þó ég botni sjónvarpið þá vantar mig alveg þann eiginleika að geta öskrað á það svona alein heima. Þegar ég var farin að láta óhljóðaleysið fara verulega í taugarnar á mér kom nágranninn heim og stemningunni var borgið.

Guði sé lof fyrir fjölbýlishús og hljóðbærni.

[Athugasemdir: 2]
mánudagur, 29. janúar, 2007

Kommablót Norðfirðinga síðastliðið laugardagskvöld, mitt fyrsta alvöru þorrablót, má taka saman í eftirfarandi punktum:

  • Kokteilpartý um kvöldmatarleytið með þotuliði Fjarðabyggðar; bæjarstýrunni og fleira merkilegu fólki. Við Jón vorum fulltrúar alþýðunnar.
  • Það að vera barnabarn fyrrum alþingismanns Alþýðubandalagsins hefur aldrei verið jafn mikilvægt.
  • Gummi Gísla prýddi forsíðu söngbókarinnar. Hann var ber að ofan á myndinni. En ekki hvað?
  • Það jók verulega á skemmtanagildi hópsöngsins þegar strákarnir byrjuðu að skeyta “aha, yeah” og “one time” inn í Jósep, Jósep.
  • Um fjórðungur þess fólks sem sat á okkar borði “lagði sig” á einhverjum tímapunkti borðhaldsins. Fæstir reyndust þó langþreyttir.

[Athugasemdir: 4]
laugardagur, 27. janúar, 2007

Ef einhver hefði sagt mér síðastliðið sumar að eftir hálf ár ætti ég eftir að nýta mér “hjónatilboð” þá hefði ég hlegið.

Mikið hrottalega er annars dýrt í tækjasalinn á Egilsstöðum. Árskort er tíu þúsundum dýrara en á Fáskrúðsfirði. Samt er salurinn þar bæði fallegri og stærri. Þar fær maður líka bara lykil ef opnunartíminn hentar manni ekki.

Ég er strax farin að sakna fjarðarins míns pínulítið. Þessi uppgerðarlegi heimsborgararembingur í Héraðsmönnum er eitthvað svo kjánalegur.

[Athugasemdir: 7]
fimmtudagur, 25. janúar, 2007

Í nokkur ár hef ég pantað allskyns bækur og mynddiska frá Amazon. Góssið fyllir allnokkrar hillur. Í dag var mér tilkynnt að ekki hefði verið hægt að afgreiða nýjustu pöntun mína. Orsakir voru óljósar. Öll eintökin sem ég vildi kaupa voru til. Amzon hætti bara við að afgreiða mig. Það sem ég ætlaði að panta voru allar þær bækur um rauðhærða sem til voru á Amazon. Þá var skellt í lás. Tilviljun? Held ekki. Við erum einfaldlega ofsótt. Alltaf. Allstaðar.

[Athugasemdir: 2]
fimmtudagur, 25. janúar, 2007

Sá fólk ekki parið sem kom fram í Kastljósi um daginn og sagði frá því að það væri á leið í brúðkaupsferðina sína á HM í handbolta? Ég fékk nú nógu hressilegan kjánahroll þegar ég sá þetta viðtal en það sem ég las á Vísi gerði alveg útslagið:

“Þau duttu síðan heldur betur í lukkupottinn þegar Alexander Petterson kastaði svitabandi sínu til áhorfenda og þau gripu það með tilþrifum.”

Heppin.

[Athugasemdir: 5]
þriðjudagur, 23. janúar, 2007

Storm Large er aftur búin að lita hárið á sér rautt.

Fokkíng vonabís.

[Athugasemdir: 5]
mánudagur, 22. janúar, 2007

Það fer að líða undir lok flutninganna. Bara nokkrir pappakassar eftir. Skemmtilega testósterónísk redding á MSN á síðustu metrunum:

Jón Knútur says:
æi, hvað mér þykir vænt um þig
Jón Knútur says:
jafnvel þó þú eigir alltof mikið af drasli
Jón Knútur says:
dóti

[Athugasemdir: 5]
mánudagur, 22. janúar, 2007

Ég held að þorrinn og maturinn sem þeim mánuði fylgir, sé akkúrat rétti tíminn til að hefja formlegt eiturefnastríð við útlendinginn á skrifstofunni minni sem smellir þessu helvítis ameríska ostapoppsógeði í örbylgjuofninn í tíma og ótíma.

[Athugasemdir: 3]
mánudagur, 22. janúar, 2007

Á sama tíma og karl faðir minn byrjar (loksins) að blogga, þá sýnist mér móðir mín hafa gefist upp. Þetta er samstíga fólk, því verður ekki neitað.

[Athugasemdir: 5]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker