header image
miðvikudagur, 27. desember, 2006

Ekki get ég sagt að ég vorkenni fólki vitund sem missir allt innbúið sitt í bruna og stendur eftir allslaust, aðeins vegna þess að það tímdi ekki að borga örfáa þúsundkarla á ári í tryggingar.

Svo finnst þessu sama fólki ekkert sjálfsagðara en að landinn standi að peningasöfnun til að kosta nýtt innbú. Aldrei myndi ég gefa krónu í svona söfnun. Tryggið bara eins og hinir, nískupúkarnir ykkar!

[Athugasemdir: 8]
þriðjudagur, 26. desember, 2006

Ég hef öfundað fegurðardrotningar af einum hlut í gegnum tíðina. Það eru sokkabuxnaverðlaunin (þær næla sér yfirleitt í ársbirgðir af sokkabuxum ef þær vinna). Hver einasta kona veit hversu gífurleg verðmæti liggja í svona verðlaunum og karlmönnum til upplýsingar þá kostar eitt almennilegt sokkabuxnapar rúmlega 1.000 kr. Það má því segja að það margborgi sig fyrir konur sem nota sokkabuxur að einhverju ráði að stefna að fegurðardrottningartitli.

Ég hef hins vegar aldrei skilið hvers vegna einar sokkabuxur þurfa að kosta morðfjár. Það sér hver mannsbarn að í framleiðslunni geta varla falist gífurleg vísindi og varla er hráefnið rándýrt heldur. Þar sem ég var að troða mér í enn eitt parið á aðfangadag settist ég niður og las utan á pakkann. “Made in Italy”.

Er nú ekki hægt að borga börnum í einhverju vanþróuðu landi 2 kr. á tímann fyrir að búa til sokkabuxur svo ég þurfi ekki að eyða óþægilega stórum hluta peninga minna í þessa vitleysu?

[Athugasemdir: 7]
mánudagur, 25. desember, 2006

Ég gef ekki kristilegar jólagjafir – enda varla við því að búast. Ég gef heldur ekki praktískar gjafir. Það er ekkert gaman að fá það sem mann vantar nauðsynlega. Ég reyni að gefa fólki eitthvað sem það gerði sér ekki grein fyrir að það langaði í. Ég held að það hafi tekist þokkalega þetta árið. Hér eru t.d. þær bækur sem ég gaf þessi jólin:

  • The Book of Bunny Suicides
  • Return of the Bunny Suicides
  • Complete Uses of a Dead Cat
  • The World’s Stupidest Headlines
  • I Hate Myself and Want to Die: The 52 Most Depressing Songs You’ve Ever Heard
  • The Rock Snob’s Dictionary: An Essential Lexicon of Rockological Knowledge

[Athugasemdir: 3]
laugardagur, 23. desember, 2006

Á meðan sumir föðurlandssvikarar báru saltfisk eða SS-pylsur á sín borð í kvöld, sporðrenndi ég svo kæstri skötu að ég náði ekki andanum eftir fyrsta munnbitann. Það eru greinilega að koma jól, þó það hafi farið óþægilega mikið fram hjá mér þennan desembermánuðinn.

Gleðileg jól öll sömul.

[Athugasemdir: 10]
föstudagur, 22. desember, 2006

Á þorláksmessu er við hæfi að rifja upp vel valdar jólaminningar. Vinahópurinn minn rifjar alltaf upp sömu átakanlegu sorgarsöguna fyrir hver jól.

Ég var í stórum bekk í grunnskóla. Höfðatalan flakkaði frá 19 og allt upp í 25 þegar mest var. Því var oft barist blóðugum bardaga um hin ýmsu hlutverk og um miðbik skólagöngunnar var jólaundirbúningurinn í hámarki þegar einn aðili úr bekknum reyndist vera rangur maður á röngum stað. Afleiðingarnar voru stórvægilegar.

Góðum vini mínum og bekkjarbróður til tíu ára, var úthlutað því mikla ábyrgðarhlutverki að mála jólapóstkassa bekkjarins. Stelpurnar stjórnuðu þessu að sjálfsögðu með harðri hendi og höfðu teiknað allar skreytingarnar á kassann. Á hann var búið að teikna risastórt jólatré og allskyns krúsídúllur í kring. Málarinn átti því að eiga óskaplega einfalt verk fyrir höndum og framan af stóð strákurinn sig bara þónokkuð vel.

En þá kom skellurinn. Málarinn var litblindur. Enginn í bekknum vissi af því þegar verkum var skipt. Flennistóra jólatréð var brúnt og jólin voru ónýt.

[Athugasemdir: 2]
fimmtudagur, 21. desember, 2006

Til slökunar í jólastressinu mæli ég með nýjum hittara Litríkra Postula um Gunnar Gunnarsson. Þvílíkur dúndursmellur.

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 20. desember, 2006

38 handskrifuðum jólakortum seinna…

Ég gerðist gífurlega kröfuhörð á seinni hluta þriðja tugsins; fór að meta hversu miklir vinir mínir þetta væru í raun og veru og hvort þeir hefðu virkilega gaman að jólakortum.

Ég skar mig á tungunni við að sleikja eitt umslagið og hef því sent heppnum vini eða kunningja einhvern spennandi sjúkdóm. Trúlega HIV eða fuglaflensuna.

Komst líka að því að mér hefur tekist að tapa skrautskriftarhæfileikunum ógnarhratt niður. Ég hreinlega skil það ekki þar sem ég fór nú á stutt námskeið árið 2003 og hef æft mig reglulega einu sinni á ári eftir það.

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 20. desember, 2006

Þrátt fyrir að vera íslenskunemi, þá finnst mér stundum eins og ég sé bara alls ekki neitt að lesa íslensku þegar ég opna skólabækurnar. Ég þurfti t.d. að lesa orðið “kyngervisusli” þrisvar áður en ég gerði mér grein fyrir því við hvað var átt.

[Athugasemdir: 2]
þriðjudagur, 19. desember, 2006

Athyglisvert að fara til læknis vegna þess að mann verkjar í hælinn þegar maður gengur, en fara frá doksa með útprentað hjartalínurit og greiningu um óreglulegan hjartslátt.

Já, það er ekki tekið út með sældinni að vera ástfangin.

[Athugasemdir: 2]
mánudagur, 18. desember, 2006

Þá eru prófin afstaðin. Það síðasta var í gær. Þau gengu bara alveg hreint ágætlega.

Ég er mætt aftur í vinnuna. Vaknaði kl. 5:50 í morgun þrátt fyrir að hafa gífurlega þörf fyrir einn útsofelsisdag. Í tölvupósthólfinu eru 167 ólesin bréf. Það er ljóst hvað ég aðhefst næstu klukkutímana.

[Athugasemdir: 2]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker