header image
fimmtudagur, 30. nóvember, 2006

Hefurðu einhvern tíma tekið tóbak í nefið af bensíndælu? Ekki?
Þessar hafa gert það.

[Athugasemdir: 3]
miðvikudagur, 29. nóvember, 2006

Ég komst að því í gær að faðir minn er meintur Fáskrúðsfirðingur, en svo var ritað um hann í Mogganum í gær: “Gunnar nokkur Geirsson sem kveðst búa á Fáskrúðsfirði”.

Ég vissi ekki að það hefði leikið einhver vafi á búsetu hans. En jæja. Maður lærir alltaf eitthvað nýtt.

[Athugasemdir: 0]
miðvikudagur, 29. nóvember, 2006

Það var nú ekki ætlunin að pólitískt röfl yrði ráðandi á þessari bloggsíðuómynd, en nú verð ég bara (í annað skiptið í dag). Ég sá að hann Albert vísaði í þetta í dag og ég er hreinlega neydd til að deila þessu með ykkur. Þvílík endemis snilld.

[Athugasemdir: 4]
miðvikudagur, 29. nóvember, 2006

Það eina skemmtilega við að neyðast til að taka til í tölvupósthólfinu sínu er að lesa í gegnum alla vitleysuna sem maður sendir og fær senda í amstri dagsins. Hér eru nokkur athyglisverð, samhengislaus brot. Sum frá mér, önnur til mín. Einhver eiga sér stoð í raunveruleikanum, önnur alls ekki.

_______________________________________

Annars var ég að fá síðustu einkunn vetrarins í hús. Önnur nían þessa önnina. Djöfull er ég sátt! Ég er samt ekki nörd. Ég sef bara hjá kennurunum. Miklu fljótlegra.
_______________________________________

Ertu að reyna að móðga mig allsvakalega? Velja hross fram yfir mig?
_______________________________________

Já, þetta er í einu orði sagt viðbjóðslegaógeðslegasubbulegaógeðfellt!
_______________________________________

Jebbs, sammála þessu með amenið og ég kasta bara inn einu hallelúja með.
_______________________________________

Mér sýnist þú hafa náð þér í ansi samkynhneigðan mann. Nei, nei, grín, grín. Það er mjög fínt að geta horft á kellingamyndir og svoleiðis í staðinn fyrir geislasverð og risaeðlur. Úúúú I´m shaking in my little spaceboots!
_______________________________________

Iss, ég hef ákveðið að lifa í algjörri blekkingu um líkamlegt atgervi mitt.
_______________________________________

Já, takk fyrir það. Enginn svindmiði í gangi, bara fleginn bolur.
_______________________________________

Ég segi nú bara það sama við þig og sagt var við ljóskuna eitt sinn: anda inn, anda út, anda inn, anda út. CALM DOWN, FOR THE LOVE OF GOD WOMAN, CALM DOWN!
_______________________________________

Lífið er erfitt og ekki skárra þegar maður er kominn með AIDS. En já, þetta kemur. Ég var líka að borga Pólverja fyrir að lauma smjörsýru í drykkinn þinn þannig að ég veit að þú ert alveg við það að slappa af.
_______________________________________

Mér líst vel á handjárnin en það verða engar tungutroðslur, ég er alltof dönnuð fyrir svoleiðis. Táldreg bara manninn á einhvern snilldarlegan hátt og læt hann skríða heim á eftir mér.
_______________________________________

Pældu í ÞESSU klámi. Ég fékk borgað fyrir að vinna það í Photoshop og gera það klárt fyrir prentun. Hver getur skoðað klámið sitt jafn löglega í vinnunni og ég?
_______________________________________

Hamraðu járnið meðan það er heitt og maðurinn er einn og viðkæmur. Kannski vantar hann líka vin núna í þessu öllu saman. Svo vex þessi vinátta í stórkostlega ást og þið kaupið ykkur hús og hund.
_______________________________________

Er það bara ég eða hljómar “truflaðu mig” kynferðislega?
_______________________________________

CAPS LOCK Á EKKI AÐ VERA Á EN ÉG ER AÐ GERA SÍMGREIÐSLUR OG ÉG NENNI EKKI AÐ TAKA ÞAÐ AF
_______________________________________

Þú ert nú kannski ekkert svakalega lauslát. Ég meina 67 eru ekkert ÞAÐ margir karlmenn.
Reply: Segir þú klóruköttur? En ég meina, 167 eru bara AÐEINS fleiri.
_______________________________________

Joke med joði, sem sagt jók, sem rímar við kók, a kóla, a björn, ís? nei, nei, poka. Já ok, bensín, ha? Já bensínið í DK, nei DKNY, nei, var það svoleðis. Veit ekki. Ég er hætt.
_______________________________________

[Athugasemdir: 6]
þriðjudagur, 28. nóvember, 2006

Maður hlustar ekki á útvarp, les ekki blöðin eða horfir á sjónvarpið þess dagana án þess að rekast á þessa dýrategund sem er í einna bráðustu útrýmingarhættu á Íslandi. Hvar sem þeir sjást rembast þeir við að fría sig af hlutdeild sinni í Íraksstríðinu og skella skuldinni á aðra.

Er þetta ekki sama syndromið og hjá mönnunum sem “lenda í framhjáhaldi”?

[Athugasemdir: 2]
þriðjudagur, 28. nóvember, 2006

Skemmtileg tilviljun að maðurinn sem iðrast svona líka svakalega sé að gefa út plötuna “Gaman að vera til” nú fyrir jólin. Svo hlægja Íslendingar að vitleysu Ameríkönunum sem kusu fíflið hann Bush aftur yfir sig.

Sá hlær best sem síðast hlær.

[Athugasemdir: 2]
mánudagur, 27. nóvember, 2006

Það sannaðist í gærkvöldi að bjartsýni móður minnar er algjörlega takmarkalaus. Hún bað okkur hin í fjölskyldunni, í fúlustu alvöru, að sitja öll saman fyrir á jólakortamynd með jólasveinahúfur.

Ég held að fólk þurfi ekki að þekkja fjölskyldu mína mikið til að ímynda sér hvers konar viðtökur þessi hugmynd fékk.

[Athugasemdir: 4]
mánudagur, 27. nóvember, 2006

Heiðurinn af einni verstu innkomu allra tíma í tónlistarmyndbandi á greinilega Siv Friðleifsdóttir. Hún er meira að segja verri en innkoma biskupsins.

[Athugasemdir: 2]
mánudagur, 27. nóvember, 2006

Hvað ætli Gunnar Birgisson fái borgað fyrir að döbba viðtöl við fólk sem vill ekki láta sína eigin rödd heyrast af hættu við að þekkjast?

[Athugasemdir: 1]
fimmtudagur, 23. nóvember, 2006

Mér og spúsa mínum hefur verið boðið til jólaskemmtunar sem býður m.a. upp á ókeypis áfengi. Þar sem spúsinn verður í höfuðborginni þennan dag er tímabundið starf við afleysingar hér með auglýst laust til umsókna. Athugði, ég get gerst lesbísk þetta eina kvöld ef einhver frambærileg kona sækir um.

[Athugasemdir: 12]

« Fyrri skrif 

eXTReMe Tracker