raudhausar.com/esther
Þetta er einhver sú merkilegasta fyrirsögn sem ég hef séð lengi.
Esther – haaaa?
[Athugasemdir: 0]
Það er hægt að kaupa ALLT á eBay. Þarna er að finna allt sem ég hef verið að leita að svo lengi. Allt sem mig hefur í raun bráðvantað – þó ég hafi kannski ekki gert mér grein fyrir því fyrr en núna.
- geimverulík og hauskúpa af annarri
- frelsari vor, vinur hans og Freud (sem ég var einmitt að leita að um daginn)
- sál fallins engils
- mynd af verðandi eiginmanni mínum
- áhugavert að blaða í þessari
- flaga
- öskubakki eftir Þorgím Þráinsson
- ímynduð kærasta
- og eitt svona þurfa nú allir að eiga
Esther – eBay is a way of life
[Athugasemdir: 0]
Fari það í hurðalaus helvíti. Ég er fallin.
Eftir að hafa eytt aðgangi mínum af ótta við að sökkva dýpra og tekist að halda fíkninni í skefjum í næstum ár, þá sprakk ég á limminu og stofnaði nýjan aðgang í dag. Ég býst við nauðgunarkæru frá VISA á hverri stundu.
Esther – sjúk
[Athugasemdir: 4]
Þeir lofuðu að þetta gerðist í ágúst. Það er einn og hálfur sólarhringur til stefnu og það er eins gott fyrir þá að svíkja ekki sinn dyggasta aðdáanda.
Esther – fan
[Athugasemdir: 0]
Við Íslendingar erum oft svo sorglegir.
Það er, út af fyrir sig, frábær árangur að einhver af okkar litla landi hafi komist í úrslit í Rockstar: Supernova. Um það skal aldrei deilt. Það er vissulega afrek að sá aðili skuli enn hanga inni, nú þegar aðeins 6 eru eftir. Ég held nú samt að það sé nokkuð ljóst að okkar maður kemur aldrei til með að vinna þetta. Ég vona það að minnsta kosti; hans vegna, konunnar hans vegna og barnsins þeirra vegna. Það er auðvitað hið besta mál fyrir hann að tolla inni aðeins fram eftir úrslitakeppninni (eins og hann hefur gert nú þegar) og ná sér þannig í öll þau sambönd sem hann getur hugsanlega langað í, en segja síðan bless til að þurfa ekki að sitja uppi með samning við þessa útúrreyktu mannvitsbrekkur.
Nú eru rokkararnir orðnir svo fáir að það er farið að hitna undir okkar manni. Þá verður þjóðin að sjálfsögðu desperate. Skyndilega munaði Símann ekkert um að lækka gjald sms-atkvæðanna úr 99 kr. í 19 kr. (Ekki nema 80% lækkun. Síminn er örugglega ekkert að okra á þessu svona dags daglega.) Eyrún, konan hans Magna, kemur fram í auglýsingum og biður fólk að kjósa sinn mann. Á útvarpsstöðinni FM957 heyrast auglýsingar þar sem þjóðin er beðin að kjósa og ef menn meika það ekki að vaka eftir kosningunni þá eru menn hvattir til að stilla vekjaraklukkurnar, kjósa og fara svo bara aftur að sofa. Á Héraði á að hittast á morgun í tjaldinu sem reist var í tilefni Ormsteitis og ekki nóg með að þar eigi að sýna þáttinn, heldur á að koma upp þráðlausu netið svo þeir sem mæti með fartölvurnar sínar í tjaldið (what?) geti kosið sem oftast á netinu.
Árangur Magna er frábær, því verður ekki neitað. Það væri bara óskandi að þjóðin myndi undir svona kringumstæðum, ekki alltaf breytast í 15 ára örvæntingarfulla stelpu sem er ekki ennþá búin að höstla og ballið alveg að verða búið.
Esther – from the land of the desperate
[Athugasemdir: 9]
Tvö fréttainnskot:
- Þetta er trúlega flottasta íþróttafréttamynd sem ég hef séð. Langaði bara að deila því með ykkur.
- Skemmtileg tilviljun að þetta okurverð hafi skyndilega breyst núna, einmitt þegar okkar maður er í hættu.
Esther – á fréttavaktinni
[Athugasemdir: 2]
Kæru lesendur. Vinsamlegast ekki hafa neinar áhyggjur þó ég sé óeðlilega krumpin þessa dagana. Ég er ekki að eldast alveg svona hratt. Karl faðir minn er bara búinn að setja upp nuddbaðkarið.
Esther – awwwwwwwh!
[Athugasemdir: 2]
Við Aldís gerðum óþægilega uppgötvun um daginn. Við komumst að því að þessa dagana ER ég konan í vitavarðaatriðunum í Fóstbræðrum.
Þetta verður ekki útskýrt frekar. Þeir skilja sem skilja. Aðrir verða bara að lifa í óskilningi. Ég er allavega ekki alveg að fíla þetta tætlur.
Annars er það í fréttum að hún Aldís er flutt til Danaveldis. Þar mun hún nema söng í vetur og táldraga Skandinavíska karlmenn. Get ekki beðið eftir að skreppa í heimsókn til hennar og hætta að vera eini Íslendingurinn sem kominn er af gelgjuskeiðinu en hefur ekki komið til Danmerkur.
Esther – vitavörður
[Athugasemdir: 8]
Eitt það allra leiðinlegasta sem ég geri er að sitja á hjóli í líkamsræktarsal. Í veikri von um að gleyma stund og stað og hjóla af mér öll aukakílóin gríp ég oft eitthvurt heilsuræktar órit sem heitir “Í formi”. Því blaði er svo illa ritstýrt að það jaðrar við Austurgluggann.
Í þessum snepli er ekkert nema þýddar greinar um töfralausnir og vítamín. Í gær greip ég niður í grein um altzheimer. Þar voru taldir upp ýmsir þættir sem við getum stjórnað í lífstíl okkar og þeir ýmist merktir sem góðir eða vondir eftir því hvort þeir hefðu aukandi eða minnkandi áhrif á líkur okkar til að fá altzheimer.
Fyrsti slæmi þátturinn var…
…langlífi!
Eftir þessa fræðslu mína ætla ég rétt að vona að þið þarna úti passið ykkur á því að verða ekki gömul. Það er stórhætturlegt!
Esther – fróðari með hverjum deginum
[Athugasemdir: 8]
Loksins eru komnar niðurstöður úr þessari rannsókn sem ég tók þátt í. Þær er að finna hér.
Esther – rannsökuð
[Athugasemdir: 8]