raudhausar.com/esther
Jæja. Þá er blessuð ritgerðin farin til leiðbeinandans, í fyrsta sinn í heild sinni. Nú bíð ég bara heima með krosslagða fingur og vona að honum lítist þokkalega á þetta.
Þangað til verð ég uggandi.
[Athugasemdir: 4]
Við skötuhjú skelltum okkur í gönguferð í Fáskrúðsfirði í gær. Ætluðum upphaflega bara upp á Engihjalla en ákváðum þegar upp var komið að rölta niður Gilsárdal.
Fleiri myndir hér.
[Athugasemdir: 0]
“Maður verður að kunna að hætta þegar maður er beðinn um það. Veistu það, hann Árni Johnsen…”
[Athugasemdir: 0]
Ég er svakalega skotin í bílaleigubílnum sem ég er á. Ég hef þurft að keyra mikið síðustu daga. Á þessum rétt rúmu 500 km hefur bílinn eytt tæplega hálfum tanki af bensíni. Hvernig í ósköpunum má það vera? Þetta þykir mér fáránlega góður díll á þessum síðustu og verstu bensíntímum.
[Athugasemdir: 0]
Hressing í skógræktarlandi við Spóastaði á Suðurlandi.
[Athugasemdir: 0][Athugasemdir: 3]
Ein af þeim (á að giska) 7 myndum sem ég tók í sumar. Planið næsta sumar er klárlega minni vinna og meira svona:

Mér finnst yndislegt að kaupa mér ruslmat í gegnum bílalúgu og troða honum í mig, án þess að þurfa að standa upp.
Tek það fram að þetta geri ég nú samt ekki oftar en einu sinni á ári.
[Athugasemdir: 0]
Eftir þriggja daga súld á Ísafirði var kærkomið að komast í bongóið á Suðurlandi í gær. Þessi viðbrigði voru reyndar kannski fullmikið af því góða fyrir þreytta og viðkvæma manneskju, sem síðan svolgraði í sig hálfum Panodil-pakka og fór að sofa kl. 22:00.

Fánar þeirra þjóða sem funduðu um skógarmál á Selfossi í dag.
[Athugasemdir: 0]
Mér er fyrirmunað að skilja þessa áráttu fólks að krækja saman höndunum og dilla sér, þegar það syngur hópsöng.
[Athugasemdir: 3]
Það rifjast upp fyrir mér núna, þegar ég sit hérna í stofunni hjá frændfólki mínu á óformlegri danssýningu 10 ára frænku minnar, að ég gekk í gegnum alveg sama tímabil og hún er á núna - gott ef ég var ekki einmitt 10 ára líka.
Hún er með river dance á heilanum.
Munur á henni og mér er sá að hún hefur tækifæri á að fara með verkefnið mun lengra en ég. Hún er t.a.m. búin að stúdera öll river dance myndböndin á YouTube. Svo dansar hún fyrir okkur. Magnað, alveg hreint.
[Athugasemdir: 1]
Á leið minni á Ísafjörð rakst ég á konu sem þóttist aldrei hafa stigi fæti í flugvél áður. Af hverju henni fannst þetta fyndinn djókur, það veit ég hreinlega ekki. Þegar við gengum út um hliðið á leið upp í flugvélina kannaðist hún ekkert við að þurfa að sýna persónuskilríki. Hún stoppaði röðina í drjúga stund á meðan hún leitaði í báðum handtöskunum sínum. Þegar við komumst loksins í vélina settist hún í fyrsta sætið sem hún sá. Þremur mínútum seinna kom til hennar maður sem sagðist eiga að sitja í þessu sæti. Þá rauk mín upp til handa og fóta og hafði hreinlega ekki vitað að það væru númeruð sæti í flugvélum.
Ég búin að vera á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands á Ísafirði frá því á fimmtudagskvöld. Þetta er búin að vera athyglisverð og lærdómsrík ferð. Ég er margs vísari um aðalfundi skógræktarsamtaka núna. Ég klikka t.d. ekki á því að taka með mér gönguskó og regngalla næst. Stór hluti fundarins fer nefnilega fram í skógunum sjálfum og ég bara búin undir langsetur og kleinuát.
Ég hélt að ég vissi svona nokkurn veginn hvernig aðalfundir færu fram. En, nei. Greinilega ekki þessi. Strax við fyrsta lið fundarins hrökk ég við. Allir voru drifnir á lappir í hópsöng. Ég veit ekki af hverju, en þetta er greinilega einhver venja á þessum fundum. Svolítið súrt samt, verð ég að viðurkenna, að hlusta fjármálastjórann ræða eigið fé samtakanna og skammtímaskuldir og sjá hann svo í næsta andartaki, ásamt fullum sal af fólki, syngja brosandi um litlu fluguna.
(Fyrir þau ykkar sem ekki vita, þá syng ég ekki. Aldrei. Ykkar allra hinna vegna, sko. Á þessari reglu geta reyndar verið tvær undantekningar:
1. Ég er ein að keyra á milli bæja í bílnum mínum.
2. Ég er svo ofurölvi að það er á mörkunum að ég muni hvað ég heiti.)
Ég komst að einu merkilegu um matarmenningu Ísfirðinga. Hér er hægt að panta pizzur í heimsendingarþjónustu. Reyndar er líka hægt að panta hamborgara og láta senda þá heim, en þá verða þeir að vera a.m.k. fjórir. Samt er hægt að panta staka pizzu. Skil ekki alveg svona stærðfræði.
Í dag hitti ég konu með skegg. Þá er ég ekki að tala um konu með óheppilega löng eða dökk hár á efrivörinni, heldur konu með skegg sem hvaða unglingspiltur sem er hefði verið stoltur af. Hún var skemmtileg. Konan sem byrjaði allar sínar setningar á “Við erum nú einmitt bæði hrútar, svo það er nú alveg týpískt að við…” var það hins vegar alls ekki.
Það er annars magnað að sjá hvað þetta er samrýmdur hópur sem hérna hittist á aðalfundinum. Hér þekkjast allir, þó hér sé saman kominn fjöldinn allur af fólki frá öllum landshornum. Fólk knúsast og kyssist, spyr um börn og barnabörn, syngur saman og dettur í’ða. Svo er það ég – manneskjan sem lítur út fyrir að hafa villst inn á vitlaust ættarmót.
Jæja. Ég er farin í hátíðarkvöldverð. Er svolítið spennt að sjá hvers konar ofurhressleiki verður þar í gangi, fyrst fólkið hérna brestur í söng kl. 9 á morgnana.
[Athugasemdir: 2]
Ég er að fílaða að sjá smá rómans í borginni, svona til tilbreytingar.
[Athugasemdir: 0]
Ég verð á flakki næstu vikuna vegna vinnunnar. Planið er svona:
14. - 17. ágúst: Ísafjörður
17. ágúst (frá hádegi): Reykjavík
18. - 19. ágúst: Selfoss
20. ágúst: Reykjavík/Hella
21. ágúst: Hella
22. ágúst: Hella/Reykjavík
Verð með símann.
[Athugasemdir: 1]
Af hverju er það alltaf yndislega, ábyrgðarfulla og tilbúna fólkið sem getur ekki eignast börn? Af hverju eignast svo fólk, sem varla getur hugsað um sjálft sig, heilu og hálfu fótboltaliðin?
[Athugasemdir: 1]

Þegar maður situr inni á skrifstofu í sólskini og hita læðist að manni værð seinni part dags. Maður finnur fyrir örlitlu andleysi og veit ekki hvernig maður á að byrja á næsta verkefni.
Þá er nú gott að hafa gott útsýni á skrifstofunni, því það þarf ekki meira en munk í fullum skrúða sem strunsar inn í tölvubúðina, til að hressa mann við.
[Athugasemdir: 0]
Skrifstofan sem ég vinn á skiptist í tvennt. Mín megin (ég er sko alveg úti í enda) eru Skógrækt ríkisins og Hérðasskógar. Í hinum endanum er Búnaðarsambandið. Þetta er ekki stór skrifstofa. Ætli við séum ekki um 20 hér þegar enginn er í fríi. Móttaka og salerni eru sameiginleg.
Nú er ég búin að vinna hérna í tvo mánuði. Í dag hitti ég stelpu sem var með mér í menntaskóla í fyrsta sinn. Hún vinnur í hinum endanum. Sko, alveg hinum megin.
[Athugasemdir: 1]
Það þýðir lítið fyrir Björgvin að ætla að skrifa einhverja þunglyndisfærslu um hvað það hafi verið rosalega leiðinlegt í Kína, um mannréttindabrot eða samsæriskenningar, þegar hann kemur heim.
Mbl.is sér um sönnunargögnin.

Þessi í bláröndótta bolnum neðst fyrir miðju verður að sjá um það.
[Athugasemdir: 2]
Mér finnst Bítlalögin skemmtilegri í flutningi annarra.
[Athugasemdir: 0]